Hvað með Mósul?

Þessar fréttir frá átökunum í Austurlöndum nær eru að verða sífellt áróðurskenndari - pro vestrænar - eins og verið sé að reyna að stofna til allsherjar ófriðar gegn Rússum. Sameinuðu þjóðirnar virðast í æ ríkara mæli vera notaðar í þessu áróðursstríði af vestrænum þjóðum.

Á meðan reynt er að gera sem mest úr hörmungarástandinu í Aleppo og Sýrlandi, fer minna fyrir fréttum um Mósul og stríðsástandinu í norður-Írak.

Þó heyrast hjáróma fréttir af því að ein og hálf milljón manna séu inniluktir í borginni og að vatnsskortur hrjái 650.000 borgarbúa. Vatnsleiðsla, sem sér 40% borgarbúa fyrir vatni, hafi verið eyðilögð í bardögum.

http://www.ruv.is/frett/650000-manns-an-vatns-i-mosul

Ekkert heyrist hins vegar frá Sameinuðu þjóðunum um að þetta gæti flokkast undir stríðsglæpi, enda bærust þá böndin að loftárásum Bandaríkjamanna, Dana og fleiri á borgina. Því varla færu uppreisnarmenn (sem kallaðir eru hryðjuverkamenn í vestrænu pressunni) að sprengja upp sitt eigið vatnsforðabú.


mbl.is „Á leið til helvítis“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífræn framleiðsla?

Fyrirtækið sem um ræðir heitir Nesbúegg og var reyndar áður í eigu þeirra sem reka Brúnegg.Fyrirtækið var keypt í október 2014.

Það er nú í eigu Líflands ehf (sem flytur inn kjarnfóður, tilbúinn áburð og fleira). Í stjórn Líflands eru m.a. Sólveig Pétursdóttur (stjórnar­formaður) og Þórarinn V. Þórarinsson.

Annar eigandi er Feier. Aðaleigandi þess var lengi hægri hönd Ólafs Ólafssonar sem kenndur er við Samskip. Hann hefur einnig verið í samvinnu við Bjarna Ármannsson, fyrrum bankastjóra, og flutti inn 600 milljónir króna í gegnum fjárfestingaleið Seðlabankans árið 2013. Aðstandendur félagsins neita að gefa upp hvernig þeir fjármunir séu til komnir.

Ég tel frekar litlar líkur á að vottunin á búinu sé rétt. Til dæmis veit ég ekki til þess að Lífland flytji inn (eða rækti) lífrænt fóður en ætla má að fóður frá þeim sé notað í framleiðsluna. 

 

 


mbl.is Biður íslenska neytendur afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupa Stjörnuegg í staðinn?

Stjörnuegg er markaðsráðandi aðili í eggjaframleiðslunni hér á landi, rétt eins og Stjörnugrís er á svínakjötsmarkaðinum. Eigandinn er einn og sami maðurinn, Geir Gunnar Geirsson á Vallá.

Fyrir nokkrum árum eignaðist Stjörnugrís eigur Brautarholtsbúsins, sem ótrúlegt en satt var þá í eigu eigenda Brúneggja, Kristins Gylfa Jónssonar og þeirra bræðra. 
Þá hagnaðist Geir Gunnar vel á því að einn helsti samkeppnisaðilinn væri úr sögunni.

Nú lítur allt út fyrir að hitt fyrirtæki hans, Stjörnuegg, hagnist einnig vel á óförum annars fyrirtækis þeirra bræðra, Brúneggja. Sérkennileg tilviljun ekki satt?

En hvernig er þetta Stjörnueggjafyrirtæki sem eggjaneytendur þurfa að leita til í auknum mæli?
Á náttúran.is is má lesa eftirfarandi um sölutrix fyrirtækisins um að framleiðsla þess sé vistvæn:
Það haldi "framleiðsluhænum sínum í búrum, fjórum saman alla ævi, í myrkvuðum skemmum, þar sem hver og ein hæna hefur svæði sem samsvarar A4 blaði (21 x 29,7 sm) en þessi búr hafa fyrir löngu verið bönnuð innan ríkja Evrópusam­bandsins."

http://www.natturan.is/samfelagid/efni/13007/

Er það þetta sem Kastljós, fjölmiðlar og Matvælastofnun vill að við neytendur styrkjum frekar - eða er kannski ætlunin að ganga að innlendri framleiðslu á eggjum dauðri? ... (Ætli ástandi sé eitthvað betra ytra?).
Líklega er þó best að hætta allri neyslu á hæsna- og svínaafurðum vegna verksmiðjubúskapnum sem fylgir þessari starfsemi.


mbl.is Eggjaskortur í desember?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of margar hænur í búrum?

Það virðist fyrirmunað fyrir blaðamenn á Moggunum að koma því inn í hausinn á sér að varphænurnar hjá Brúneggjum séu ekki í búrum heldur fái að ganga frjálsar um í hæsnahúsunum. Þess vegna þessi fullyrðing um að framleiðslan sé vistvæn.
Þetta er önnur bullfréttin í blaðinu um búrfuglana hjá Brúneggjum.

Lesendur hljóta að geta gert þá kröfu á ritstjórn Moggans að blaðamenn séu starfi sínu vaxnir - og að þeim sé komið í skilning um svo einfalda hluti.
Blaðið setur niður við svona fréttaflutning.


mbl.is Högnuðust um 100 milljónir hvor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju þessar upplýsingar um Brúnegg fyrst núna?

Það er nokkuð sérkennilegt að Matvælastofnun hafi allt í einu ákveðið að leyfa Kastljósi fullan aðgang að öllum gögnum um fyrirtækið Brúnegg eftir að hafa legið á þessum upplýsingum eins og ormur á gulli í nær 10 ár. Og aðgengið eru ekkert smáræði. Full af myndefni sem gerir uppljóstranirnar miklu áhrifameiri. 

Ef ætlunin var að rústa fyrirtækinu algjörlega virðist það hafa tekist fullkomlega. Það fer nær örugglega í gjaldþrot eftir þetta með allri þeirri tragidíu fyrir aðstandendur sem slíku fylgir.

Nú er Brúnegg næstum eini eggjaframleiðandinn þar sem fuglarnir fá að valsa um frjálsir - og því gera þeir að vissu leyti tilkall til að vera vistvænir.
Allir aðrir helstu eggjaframleiðendur landsins hafa fugla sína í búri. Þessi frétt verður þannig til að styrkja búrfuglabúin. Varla verða önnur egg í boði í verslunum eftir þetta en búregg.

Og hvernig ætli ástandið sé í þessum búrbúum?
Er ekki eðlilegt og sjálfsagt að krefjast þess af Kastljósi að gefa neytendum nasasjón af ástandinu í þeim, svo til að sýna sanngirni - og MAST að veita þær upplýsingar með myndefni og alles?
Af þeim myndum sem ég hef séð, er ástandið síst betra þar í meðferð dýranna en hjá Búreggi. Líklega er best og einfaldast fyrir okkur neytendur að hætta að borða hæsnafurðir alfarið ...

En aftur að spurningunni um af hverju núna? Eins og margir vita þá hefur Matvælastofnun eftirlit með dýrahaldi og með fjölda dýralækna á launaskrá hjá sér, þar á meðal yfirdýralækninn.

Í fyrrahaust kærði eitt af fyrirtækjum þeirra Brúneggjarbræðra, Síld og fiskur, Dýralækningafélagið og BHM, á meðan á verkfalli þeirra stóð, til Samkeppniseftirlitsins fyrir að veita fyrirtækinu ekki sömu undanþágu og öðrum framleiðendum.
Eftir það fóru aðgerðir MAST gegn þeim að þyngjast og lauk þeð því að opnað var fyrir aðgengi fjölmiðla að gögnum stofnunarinnar um fyrirtækið.

Því er ekki óeðlilegt að ætla að hér sé um að ræða hefndaraðgerð MAST og dýralæknanna innan stofnunarinnar gagnvart þessu fyrirtæki.

Ekki meira um það. Aðgerðarleysi MAST áður í þessu máli er óforsvaranlegt, ekki aðeins gagnvart neytendum eða dýrunum sem í hlut eiga, heldur einnig gagnvart eigendum fyrirtækisins.
Ástæða er til að óttast að þetta aðgerðarleysi ríki enn gagnvart öðrum aðilum sem stofnunin á að hafa eftirlit með. Það þarf greinilega að setja Matvælastofnunina sjálfa og starfsemi hennar undir eftirlit. Líklega þurfa nokkrir hausar að fjúka þar ...


mbl.is Hætt að selja Brúnegg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í búrum?

Þessi dýr voru alls ekki í búrum, eins og glögglega kom fram á myndum sem birtust í Kastljósi, heldur gengu frjálsar um í húsunum.

Enda fjallaði þátturinn, og gagnrýni MAST, alls ekki um það heldur að það væri alltof margar hænur í húsunum og þess vegna hafi framleiðslan aldrei verið vistvæn.

Svo var auðvitað margt annað að, svo sem brot á dýravelferð osfrv. 

Ég er ósköp hræddur um að það kaupi ekki nokkur lifandi sála brúnegg af fyrirtækinu eftir þennan þátt og þessar upplýsingar, hvað þá að þurfa að borga allt að 40% hærra verð fyrir vöruna!!


mbl.is Aldrei verið vistvæn framleiðsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kostuleg úttekt þetta!

Aðeins rætt við einn mann sem er greinilega á móti skattahækkunum - vill hafa skattana sem lægsta - og það látið vera eins konar Salómonsdómur um skattapólitík.

Ekkert borið saman við önnur lönd, og rökin gegn slíkri lágskattapólitík ekki nefnd, hvað þá að tala einnig við einn fulltrúa slíkra sjónarmiða!

Já, ungliðahreyfing Sjálfstæðisflokksins hefur komið sér vel fyrir hjá Mogganum og gengur nú erinda eigandans, útgerðardömunnar úr Eyjum.
Reynt að láta líta svo út að auðlindaskatturinn lendi fyrst og fremst á öldruðu fólki sem eigi talsverð verðmæti í íbúðarhúsnæði en litlar tekjur!

Ekkert rætt um útgerðina sem auðlindaskattinum er fyrst og fremst ætlað að ná til.


mbl.is Hvað er málið með þessa skatta?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seigir þessir Vestfirðingar!

Amma Bjargar, Svava Bernharðsdóttir, var fædd á Kirkjubóli í Valþjófsdal í Önundarfirði. Margir úr þeim "af"dal fluttu til útlanda á síðari hluta síðustu aldar, hafa búið þar síðan og gert það gott.


mbl.is Að finna hjartafrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig þá?

Þetta er mjög áróðurskennd frétt og hljómar eins og hún sé samin af borgarstjóranum sjálfum.
Geldingarnesið er auðvitað geysifallegt byggingarsvæði fyrir íbúðabyggð, já eða útivistarsvæði fyrir borgarbúa, sem nú á að eyðileggja gjörsamlega með efnistöku. 

Og rökin er kunnugleg!: "að minnka stór­lega út­blást­ur gróður­húsaloft­teg­unda, minnka um­ferð á veg­um, slit gatna, slysa­hættu og kostnað." 

Hvernig er eiginlega hægt að minnka útblástur, umferð á vegum og fl. með efnistöku í Geldingarnesi?

Nær er að halda að slík gríðarleg efnistaka geri íbúum í Grafarvogi lífið óbærilegt. Stanslaus akstur vörubíla um íbúðahverfi og vegi sem þegar anna takmarkað þeirri miklu umferð sem þar er nú þegar.

Borgarstjórinn er orðinn alræmdur fyrir að reyna að telja fólki trú um að hvítt sé svart og öfugt en þetta slær nú öll met!

 

mbl.is Gríðarleg verðmæti í berginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðandi spurning!

Þarna er nú verið að gera úlfalda úr mýflugu. Birgitta var einfaldlega spurð af fréttamanninum hvort að þetta væri úrslitafundur - og hún svaraði því til að það mætti svo sem segja það. 

Þá hleypur auðvitað rugludallur eins og Páll Vilhjálmsson til og talar um hótum Birgittu!

Já, hægra liðið gert allt til að sverta Pírata þessa daganna til að koma í veg fyrir vinstri stjórn.


mbl.is Segir fundinn í dag úrslitafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Nóv. 2016
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 454854

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband