7.4.2017 | 12:51
Viðbrögðin ytra
Stjórnvöld í Þýskalandi, Bretlandi, Frakklandi, Tyrklandi, Ísrael, Japan, Póllandi, Ástralíu og Sádi-Arabíu hafa lýst yfir stuðningi við árás Bandaríkjahers.
Danski utanríkisráðherrann styður árásirnar fullkomlega en norska ríkisstjórnin er varkár.
Sá danski fagnar meira aggressívri stefnu Trumpstjórnarinnar, kallar hana reyndar meira globalistisk! Hann seigst einnig vera tilbúinn til að taka aukinn þátt í aðgerðunum í Sýrlandi!
Sænski utanríkisráðherrann er hins vegar skeptískur og spyr hvort árásin sé ekki brot á alþjóðalögum. Annar stjórnmálamaður segir að nú sé vísirinn að auknu samstarfi Bandaríkjamanna og Rússa úr sögunni. Þetta sé auðvitað þvert á loforð Trumps í kosningabaráttunni um að bæta tengslin við Rússa.
Og kannski eru þetta fyrst og fremst viðbrögð við þeirri klemmu sem Trump og nánir samstarfsmenn hans margir hverjir eru í vegna tengsla þeirra við Rússa og Rússland.
Veik staða heima fyrir kallar oft á skyndiaðgerðir utanlands, og þá hernaðarlegar, til að snúa andstreyminu í meðbyr.
Svo er maðurinn auðvitað populisti af hæstu gráðu og hagar sem slíkur seglum sínum eftir vindi. Þannig menn eru auðvitað óútreiknanlegir og í raun óhæfir stjórnendur. Afleiðingin af þessari árás er sú að heimsfriðurinn er nú í mikilli hættu.
Er sagan að endurtaka sig? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2017 | 06:20
Hið geðugi Trump!
Jæja! Þá er upptröppun á stríðinu í Sýrlandi byrjuð, þvert á kosningaloforð Trumps um að leysa átökin þar með samningum.
Allt á forsendum þess að Sýrlandsher hafi borið ábyrgð á eiturgasinu sem drap fjölda óbreyttra borgara. Í stað þess að bíða eftir hlutlausri rannsókn á málinu, tók Kaninn málin í eigin hendur og gerðist bæði dómari og böðull. Það var ekki hægt að sleppa tækifærinu sem gafst.
Og ekki í fyrsta sinn. Minnir óneitanlega á aðdraganda innrásarinnar í Írak en þá var ein helsta tylliástæða hennar meint eiturgasárás Írakshers á eigin íbúa.
Það verður forvitnilegt að sjá hvernig andstæðingar Trumps bregðast við þessum tíðindum. Fagna þeir eða gagnrýna?
Þegar er farið að tala um fáfengileika Trumps í sambandi við árásina. Að hún sé tilraun hans til að vinna sér vinsælda meðal "góða" fólksins.
Góða fólkið er nefnilega alltaf tilbúið að drepa aðra - í góðum tilgangi.
Bandaríkin gerðu árás í Sýrlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 7. apríl 2017
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 7
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 65
- Frá upphafi: 454854
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 58
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar