Heklugosið 1980?

Hvernig er það eiginlega með öll þessi gos sem orðið hafa undanfarin 30 ár eða svo? Það er eins og engar upplýsingar liggi fyrir um þau, eða þá afleiðingar þeirra, sérstaklega ekki fyrir bændur og búfénað.

Eitthvað mikið virðist að í vísindasamfélaginu hvað skrásetningu og rannsóknir á öskufalli varðar. Það hlýtur þó að vera forsenda þess að hægt sé að vera með viðbragðsáætlanir rétt eins og Almannavarnir eru með hvað flóðahættu varðar. En kannski skipta bændur engu máli, allra síst sauðfjárbændur.

Það eina sem ég hef fundið í fljótu bragði um afleiðingar eldgosa á búskap er þessi lýsing á Heklugosinu 1970. Mér skilst að það hafi verið frekar lítið gos hvað öskufall varðar, mun minna en Eyjafjallagosið nú, en samt var tjónið þónokkuð: 

"Heklugos varð 1970. Hófst það 5. maí og stóð fram í júlíbyrjun. Allmikið hraun rann og öskufall olli nokkru tjóni í uppsveitum Rangárvalla- og Árnessýslu, norður um Húnavatnssýslur og syðst í Strandasýslu. Spilltust hagar svo að víða varð að halda fé inni fram á sumar. Nokkuð bar á sjúkdómum í sauðfé (flúoreitrun) og hrossum."


mbl.is Grábrúnn himinn á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þetta gæti verið áhugavert:

http://www.nefsholt.com/skjol/%C3%9Dmis%20%C3%A1hrif%20eldgosa%20%C3%A1%20g%C3%B6ngur%20og%20r%C3%A9ttir.doc

Hér er eitthvað að finna um gosið 1980-1981 (þó ekki sérstaklega mikið) http://www.islandia.is/hamfarir/jardfraedilegt/eldgos/hekla.html#Annáll Heklugosa

(fleiri gos hér: http://www.islandia.is/hamfarir/jardfraedilegt/eldgos/islenskeldfjoll.html )

Meira um Heklu: http://en.wikipedia.org/wiki/Hekla

gummih (IP-tala skráð) 14.5.2010 kl. 11:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 454854

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband