29.11.2019 | 17:18
Mikil er trú þín kona ...
Spáin er sú að þessi hlýindi verði skammvinn. Strax á þriðjudag kólnar og svo frystir aftur á miðvikudag - og verður kalt eins langt og spár ná.
Svo er það auðvitað mánuðurinn sem er að líða. Hann stefnir í það að vera ansi kaldur, sérstaklega á Norður- og Austurlandi, en einnig syðra. Veðurstofan á eftir að upplýsa okkur betur um það - og ekki fyrr en síðar!
Spá 10 stiga hita í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2019 | 13:10
Vinur í raun!
Einhvern tímann fyrir löngu heyrði ég málshátt sem var eitthvað á þessa leið: Segðu mér hverjir vinir þínir eru og ég skal segja þér hver þú ert.
Þetta gæti sagt manni margt um persónu Kristjáns Þórs í ljósi afhjúpunarinnar á Þorsteini Má.
Kristján ber við langvarandi vináttu við Þorstein og að þeir sé uppeldisfélagar.
Ég þekki þó margt skyldfólk Þorsteins fyrir norðan - og marga Dalvíkinga - sem vildi helst ekki kannast við skyldleikann - og jafnaldra Þorsteins á Dalvík sem könnuðust ekki við að vera vinir hans. Enda held ég að hann sé ekki vinmargur maður - og líklega er hann Akureyringur en ekki Dalvíkingur.
Kannski sem betur fer þetta um vinskapinn, enda segir annar málsháttur: Líkur sækir líkan heim.
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=5708
Erfitt að greina á milli vinar og forstjóra? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2019 | 18:18
Hjartnæmt viðtal um áratuga langa vináttu!
Já þetta er svo sannarlega hjartnæmt viðtal við Kristján Júlíusson sjávarútvegsráðherra um hina miklu og nánu vináttu við Þorstein Má Baldvinsson, sem hefur verið ásakaður um fjármálahneyksli, mútuþægni, glæpamennsku og siðleysi!
Í ljósi þess að sjávarútvegs- og dómsmálaráðherra Namibíu hafa sagt af sér (eða verið reknir, eins og reyndar kemur fram annars staðar), þá fer það að vera himinhrópandi spurning hvort Kristján verði ekki einnig að segja af sér (eða látinn taka pokann sinn).
Í hvaða erindum var hann til Samherja t.d. þegar hann hitti þessa Namibíuhákarla og tók í höndina á þeim? "Minn maður í ríkisstjórninni", sagði Þorsteinn Má við þá. Þeir hafa eflaust skilið hvað hann átti við.
Kristján Þór: Ábyrgðin alltaf hjá fyrirtækinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2019 | 08:52
Fyrirsjáanlegt en lágkúrulegt
Samherji hefur löngum lagst lágt í lágkúrunni en þetta toppar það nú alveg.
Næg gögn eru til staðar sem sýna að æðstu stjórnendur hér heima stóðu fyrir þessu - og svo hefur verið bent á að mútugreislurnar hafi haldið áfram undanfarin þrjú ár eftir að "blóraböggullinn" var látinn taka pokann sinn.
Annars má einnig benda á að nú lætur stjórnarandstaðan illa, einkum kratarnir sem þó gerðu þetta mögulegt (Sighvatur Björgvins og "þróunaraðstoðin")!
Menn benda á lögreglurannsóknina á Seðlabankamálinu (og Samherja) sem Katrín forsætis fyrirskipaði - og sagði framgöngu Seðlabankans í garð fyrirtækisins grafalvarlegt mál!
Svo er það veiðigjaldið sem á að lækka mikið samkvæmt fjáraukalögum þrátt fyrir að gróðinn í sjávarútveginum hafi aldrei verið meiri en nú síðsumars - lækkun sem gerir það að verkum að ríkissjóður verður rekin með talsverðum halla á næsta ári.
https://www.mbl.is/200milur/frettir/2019/11/12/velta_sjavarutvegsins_104_milljardar_i_juli_og_agus/
Svo eru það tengsl sjávarútvegsráðherra við Samherja, sem m.a.s. hitti þessa Namibíumenn. Hann er kannski helsti frumkvöðullinn að þessari lækkun veiðigjaldanna - allt fyrir vinina fyrir norðan?
Annars er þetta mál sorglegt. Tvö sósíalistísk ríki, Namibía og Angóla, flækt í þetta spillingarmál. Báðir flokkarnir. sem þar ráða, voru hetjur sjálfstæðisbaráttunnar!
Jóhannes hafi flækt Samherja í ólögmæt viðskipti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2019 | 12:37
Miklu fleiri en "Danir" á móti þessu!
Það var frétt um þetta á vef Aljazeera(!) sem ekki fór mikið fyrir í íslenskum fjölmiðlum.
Matthew Driscoll prófessor, hinn mikli Íslandsvinur sem sér um safnið við Kaupmannahafnarháskóla, er algjörlega mótfallinn þessu og sömuleiðis Haraldur Bernharðsson prófessor í miðaldafræðum við HÍ:
Líklegt má telja að þetta sé einfaldlega þjóðernispopulismi hjá Lilju Alfreðs, sem og tilraun stjórnvalda og stjórnenda Árnastofnunar hér á landi til að réttlæta að verið sé að fylla upp í holu íslenskra fræða (en þar er hugmyndin að koma fengnum fyrir ef hann fæst).
Handritin eigi heima í Danmörku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2019 | 10:43
Allir "stjörnur" hjá Svíanum!
Sænsku íþróttafréttamennirnir, sérstaklega þó hjá "gulu" pressunni sem Expressen óneitanlega er, kalla nær alla leikmenn bestu liðanna þar í landi fyrir stjörnur.
Arnór Ingvi er þannig aðeins ein af stjörnunum hjá Malmö, ekki Stjarnan sem stóru essi!
Arnór stjarnan í Malmö: Stekk ekki á hvað sem er | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 54
- Sl. sólarhring: 103
- Sl. viku: 276
- Frá upphafi: 455277
Annað
- Innlit í dag: 48
- Innlit sl. viku: 231
- Gestir í dag: 46
- IP-tölur í dag: 46
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar