12.6.2017 | 15:35
"Heilbrigðisvottorð" Umhverfisstofnunar!
Umhverfisstofnun var rétt nýbúin að gefa út heilbrigðisvottorð um að "byrjunarerfiðleikar" kísilversins í Reykjanesbæ væri úr sögunni þegar ofn verksmiðjunnar bilaði enn einu sinni (ég hef ekki tölu á þessum bilunum en það hafa eflaust margir íbúar í nágrenni hennar).
Það er engu líkara en talsmenn Umhverfisstofnunar séu einnig sérstakir talsmenn kísilversins, eins duglegir þeir nú eru til að afsaka þessar tíðu bilanir, frekar en umhverfisins og íbúanna eins og maður hefði nú haldið að væri verkefni stofnunarinnar.
Er ekki einfaldast að leggja Umhverfisstofnun niður og láta mengunarfyrirtækin sjálf sjá um að afsaka mengunina - og hafa eftirlit með þeim, eins og þau reyndar gera nú þegar?
Þannig sparast miklir peningar skattgreiðanda - og allar þessar pínlegu afsakanir "eftirlits"stofnunarinnar verða úr sögunni.
Yfir 200 kvartanir vegna mengunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 12. júní 2017
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 3
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 218
- Frá upphafi: 455368
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 178
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar