14.1.2018 | 20:48
Brostnar væntingar!
Logi Geirs er alltaf jafn bjartsýnn - og klikkaður! Einu marki undir í hálfleik en samt var Ísland samasem búið að vinna leikinn!!
Ég nenni nú ekki að nefna Hauk Hauks eins mikill jámaður sem hann er (frábært, stórkostlegt osfrv). Og svo blessaður karlinn hann Einar - allt dómurunum að kenna!
Hér er hins vegar fyrst og fremst þjálfarinn að klikka illilega. Hefur engin svör þegar illa gengur. Notar sömu mennina í sókninni þótt ekkert gangi.
Undarlegast auðvitað er að hann geti ekki notað Rúnar Kárason sem átti stórleik í fyrri hálfleik gegn Svíum (fyrst inná á 47. mín.!). Ómar þó að klikka illa og það þegar síst skyldi. Og annar sem átti stórleik gegn Svíum, Ólafur Guðmundsson, spilar nær ekkert í sókninni!
Geir með falleinkunn!
Króatar stungu af í seinni hálfleik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2018 | 12:55
Uppselt?
Var ekki verið að tala um að það hafi verið uppselt á leikinn og mikill áhugi fyrir honum? Leikvangurinn er hálftómur!
Þá segir hér í lýsningu að rakt sé, en það hefur verið úrhellir lengstum rétt eins og í fyrri leiknum!
Vel valinn (regn)tími til að fara til Indónesíu?
Albert fór á kostum í öðrum sigri Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 14. janúar 2018
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 26
- Sl. sólarhring: 56
- Sl. viku: 321
- Frá upphafi: 455323
Annað
- Innlit í dag: 23
- Innlit sl. viku: 270
- Gestir í dag: 21
- IP-tölur í dag: 21
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar