Hverjir komast í lið?

Það verður fróðlegt að sjá hverjir komast í dag í liðin sem þeir eru að keppa með, sérstaklega landsliðsmennirnir.
Sá fyrsti, Theódór Elmar, er ekki með sínu liði (reyndar er þessi leikur ekki gefinn upp nema hjá Mogganum!).

Þetta minnir mann reyndar á að tveir hörku miðjumenn eru að leika í svissnesku deildinni, og með liðum sem eru í toppbaráttunni, þeir Guðlaugur Victor og Rúnar Már.
Þeir eru þó ekki valdir heldur menn eins og Th. Elmar í tyrknesku b-deildinni (!) og Ólafur Ingi en lið hans er langneðst í tyrknesku úrvaldsdeildinni!

Hvernig ætli standi á þessu?
Guðl. Victor er meira að segja fyrirliði í sínu liði, Zürich.
Ætli Aron Einar vilji ekki hafa hann í liðinu - og fleiri sem ættu að vera þar?
Margt bendir nefnilega til þess að fastamennirnir í íslenska landsliðinu hafi harla mikið að segja um valið á landsliðshópnum.


mbl.is Hvað gerðu Íslendingarnir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki burðugur hópur gegn Argentínu!

Af þeim leikmönnum sem hafa verið valdir eru átta sem detta út þegar endanlegur hópur fyrir HM verður valinn. Nánast engar líkur eru á að einhver utan þessa hóps verði þar með nema þeir meiddu (Alfreð Finnboga og Gylfi). (Ekki Haukur Heiðar Hauksson, Elías Már Ómarsson eða Kristján Flóki Finnbogason sem þó hafa verið að standa sig mjög vel á undirbúningstímabilinu fyrir leiktíðirnar í Svíþjóð og Noregi)

Sem dæmi um stöðuna á hópnum þá hafa eftirtaldir leikmenn lítið verið að spila með liðum sínum: markmennirnir Ögmund­ur Krist­ins­son (ekkert!) og Ingvar Jóns­son (Ingvar reyndar búinn að vera meiddur). Af „varnarmönnum“: Birkir Már, Kári Árna, Samúel Kári og jafnvel Hjörtur Hermanns. Af miðjumönnum þeir Aron Einar, Birkir Bjarna, Emil Hallfreðs, Ólafur Ingi og Arnór Ingvi (Aron og Arnór verið meiddir). Af sóknarmönnunum er það auðvitað fyrst og fremst Kolbeinn sem hefur ekkert spilað en Jón Daði einnig ekki mikið og Albert Guðm. nær ekkert. Kjartan Henrý hefur einnig spilað frekar lítið.
Þannig er leikæfingin ekki upp á marga fiska hjá liðinu.

Einnig eru margir þeirra að leika í b-deildum. Þar er listinn langur: Frederik Schram, Hörður Björgvin, Aron Einar, Birkir Bjarna, Rúrik Gísla, Theódór Elmar (í Tyrklandi!) og Jón Daði. Reyndar má segja að Ólafur Ingi sé einnig að spila með b-deildarliði því lið hans (í Tyrklandi) er löngu fallið. Auk þess má jafnvel fullyrða að helsti markmaðurinn okkar, Hannes Þór, sé einnig að spila í b-deildarliði, svo illa er lið hans að standa sig í dönsku úrvalsdeildinni (og hann að fá slæma dóma).

Þetta boðar nú ekki gott. Að auki eru tveir bestu menn liðsins meiddir og verða því í lítilli leikæfingu þegar mótið byrjar – og það gegn engu smá liði: Argentínu.

Hætt er því við að það stefni í algjöra niðurlægingu í fyrsta leik – rétt eins og í leiknum gegn Frökkum á EM (4-0 í hálfleik!), eða jafnvel eitthvað enn verra. Frakkar höfðu jú engan Messi í liði sínu.


mbl.is Átta af þessum detta út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. mars 2018

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 21
  • Sl. sólarhring: 49
  • Sl. viku: 199
  • Frá upphafi: 455171

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 168
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband