Smjörklípa Moggans!

Það er athyglisvert að á meðan flestir fjölmiðlar landsins fjalla þessa daganna mest um styrkveitingar til Guðlaugs Þórs Þórðarsonar fyrrum ráðherra í hrunstjórninni og núverandi alþíngismanns fyrir Sjálfstæðisflokkinn, þá fjallar Mogginn nær ekkert um þann mútuskandal, heldur reynir að þyrla upp moldvirði vegna launamála seðlabankastjóra.

Ljóst er að með tilkomu Davíðs Oddssonar í stól ritstjóra blaðsins þá hefur Mogginn aftur orðið að flokksblaði sem birtir helst engar fréttir sem eru óþægilegar flokknum.

Auk þess má benda á að á mánudaginn var sagt frá því að ákveðið hafi verið að fara með mál Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins fyrir dóm. Er því núverandi ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi seðlabankastjóri, Davíð Oddsson, í enn sterkari stöðu grunaðs manns en áður - og mundu flestir heiðvirtir fjölmiðlar víkja manni, sem svo stendur á hjá, úr starfi þótt ekki væri nema tímabundið.

En Mogginn tekur í staðinn upp smjörklípuaðferð ritstjóra síns og reynir að þyrla upp sem mestu moldvirði til að hylja mál ritstjórans - og þingmanns flokksins.

Lengi má böl bæta með að benda á eitthvað annað.

 


mbl.is „Ræddi ekki launamálin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 75
  • Sl. viku: 228
  • Frá upphafi: 455229

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 187
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband