Borgarstjórnarmeirihlutinn og fjármálagúrúarnir!

Dagur og félagar, já Hjálmar Sveinsson (!), gera það ekki endasleppt þessa daganna í að reyna að skrapa aur í galtóman borgarsjóð. Nú á að eyðileggja einstaka gróðrarvin í borginni - og eitt af flottari húsum borgarinnar, til að þjóna blönkum "banka"ræningjum - og til að fá smá pening í kassann sem útrásarliðið tæmdi á sínum tíma með hjálp kratanna í borgarstjórn.

Mikið er nú dapurlegt að horfa upp á örlög Hjálmars Sveinssonar formanns umhverfis- og skipulagsráðs. Þessi maður var skeleggur málsvari verndum umhverfis, náttúru og húsa í borginni áður en hann ánetjaðist Samfylkingunni og gekk í björg með henni.
Núna þarf hann að verja öll skítverkin sem Dagur og co standa fyrir í umhverfis- og skipulagsmálum. 

Og það er furðulega hljótt um skipulagsskandalana í borginni "okkar". Þessi absúrda frétt er aðeins ein í röð margra.

Sú sem kom á undan þessari var "þétting" byggðar á háskólasvæðinu. Þar á að reisa stúdentaíbúðir á örlitlum frímerkjum, líklega vegna þess hve byggðingarland er takmarkað á okkar litla borgarlandi, hvað þá á okkar pínu-pínulitla Íslandi! 

Samkvæmt þessari frétt á hér að ofan á að eyðileggja fallegan trjálund í borginni, grænt svæði, rétt eins og á að gera á háskólasvæðinu.
Austan við Þjóðarbókhlöðuna er fallegur og fjölfarinn lítill lundur þar sem á að reisa 100 íbúðir! Og austan við Gamla garð, sem er einhver snotrasta byggingin á háskólasvæðinu, á að reisa aðra eins 100 íbúðablokk á enn minna frímerki - og láta þetta hús þar með algjörlega hverfa sjónum vegfarenda.
Og enginn segir neitt.

Ætli þessi þögn byggist ekki á því að flestir umhverfissinnar eru vinstri menn - og þegar vinstri menn nauðga umhverfinu þá heyrast engar mótmælaraddir?

Persónulega finnst mér að þá fyrst sé ástæða til að láta heyra í sér!


mbl.is Vilja tvö fjölbýlishús við Sogaveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 245
  • Frá upphafi: 455361

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 195
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband