Af hverju er hann ekki í hópnum?

Nú þegar Ólafur Ingi Skúlason er ekki lengur með landsliðinu vegna meiðsla skilur maður ekki alveg af hverju maður eins og Guðmundur Þórarins sé ekki kallaður í hópinn.

Sérstaklega í ljósi þess hversu fáir eiginlegir varnartengiliðir eru í hópnum - og einnig vegna þess að landsliðsþjálfararnir tóku Rúnar Sigurjónsson ekki með, þeir þykjast jú nú þegar vita "hvað hann getur"!

Miðjan reyndist veikasti hlekkur landsliðsins gegn Dönum, enda ekki skrítið. Aron Einar í sama sem engri leikæfingu og Gylfi spilar alls ekki þá stöðu með Swansea (og er enginn miðjumaður í sér).

Knattspyrnuáhugamenn eru farnir að kalla eftir íslenskum sigri enda eru átta leikir síðan sá síðasti kom - og farnir að óttast að EM í sumar verði algjör niðurlæging fyrir íslenska knattspyrnu.

En þjálfararnir virðast ekki kippa sér upp við neitt, enda kunnir af öðru en að vera skjótir að bregðast við ef vandi steðjar að. 


mbl.is Guðmundur samdi við Rosenborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Kannski er þetta skýringin, þ.e. að Guðmundur var kominn á bekkinn hjá Nordsjælland með þjálfaraskiptunum í vetur: 
http://politiken.dk/sport/fodbold/ECE3133975/fc-nordsjaelland-saelger-islandsk-reserve-til-rosenborg/

Torfi Kristján Stefánsson, 28.3.2016 kl. 11:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 219
  • Frá upphafi: 455369

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 179
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband