Mjög ásættanlegur samningur?

Talað er um hækkun ráðstöfunartekna þeirra lægstlaunuðu um 10 þúsund krónur á mánuði en ekki kemur fram hvernig.

Ekkert talað um hve skattaprósentan í lægsta skattþrepinu verði mikil, en hún var jú mjög ná­nasarleg í fyrri tillögu ríkisstjórnarinnar. Katrín forsætisráðherra var mjög loðin í svörum um það í viðtali við Heimi Má í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.

Kjarninn greinir reyndar frá því að með tilkomu lægsta skattleysisþrepsins hækki ráðstöfunartekjurnar um 3.250 kr. miðað við fyrra tilboð. Þetta átti samkvæmt fyrra tilboði að vera á þremur árum og hefur varla verið breytt. Hækkunin nemur þannig 1000 krónum á mánuði fyrsta árið og aðrar 1000 kr. á því næsta. Það er næstum eins hlægilegt og fyrra tilboðið!

Í ljósi þessa er mikill viðsnúningur verkalýðshreyfingarinnar undrunarefni. Í stað hins harða tóns eru kominn sáttartónn – og borið við að staðan í þjóðfélaginu sé allt önnur nú með galdþroti Wow-air.
En af hverju er þá verið að semja til þriggja og hálfs árs? Verður samfélagið virkilega svona lengi að ná sér? Varla!
Nær væri að semja til árs vegna þessarar nýju stöðu – en helst að semja ekki neitt uppá þessi býti, sem hafa eflaust lítið sem ekkert breyst síðan fyrra útspil ríkisstjórnarinnar kom. 


https://kjarninn.is/skyring/2019-04-02-rikisstjornin-metur-framlag-sitt-til-lifskjarasamninga-a-100-milljarda-krona/

 


mbl.is Ætla sér að skrifa undir kl. 15
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 150
  • Frá upphafi: 455373

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 123
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband