Er yfirhylmingin alvarlegri en brotin?

Nokkuð sérkennileg yfirlýsing frá framkvæmdastjóra SOS-barnaþorpanna á Íslandi. Þessi brot sýna mjög alvarleg mein innan sjálfra samtakanna ekki aðeins í stjórnsýslunni heldur í allri starfseminni, samtaka sem velta gífurlegum upphæðum á hverju ári.

Ásakanirnar, sem reynt hefur verið að þagga niður, eru allt frá kynferðislegri misnotkun á börnum og annað líkamlegt ofbeldi, spilling og misnotkun á styrktar- og söfnunargjöfum. Þessi brot hafa staðið lengi yfir eða í um 30 ár og virðast vera kerfislega innbyggð í þetta "hjálparstarf". Sem sé þrælskipulögð glæpastarfsemi til að hafa fjármuni af góðtrúa fólki?

Í norskum fjölmiðlum kemur þetta allt saman ágætlega fram en norsku samtökin eru ein af þeim átta alþjóðlegu SOS stofnunum sem hafa tekið þátt í þessari rannsókn. Ætli sú íslenska sé ein af þeim?:

https://klassekampen.no/utgave/2021-05-05/sviktet-barna-de-skulle-beskytte

https://www.nrk.no/norge/rapport-om-sos-barnebyer-avdekker-overgrep_-korrupsjon-og-misbruk-av-midler-1.1548445

Athygli vekur að á heimasíðu samtakanna hér á landi (sos.is) er ekki hægt að lesa um málið (en það var fyrst í gær (5. maí) sett inn á netið) né aðrar upplýsingar um samtökin, nema maður gefi leyfi til að hleypa auglýsingum að, sem er nokkuð sérkennilegt af hjálparsamtökum að vera. Auk þess kemur ekki fram, að því að ég best fæ séð, hvað miklir fjármunir renna í gegnum samtökin eða hvað hið opinbera styður þau um háar upphæðir o.s.frv. Alvarlegar brotalamir einnig hér?


mbl.is Yfirhylming á æðstu stöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 53
  • Sl. sólarhring: 103
  • Sl. viku: 275
  • Frá upphafi: 455276

Annað

  • Innlit í dag: 47
  • Innlit sl. viku: 230
  • Gestir í dag: 45
  • IP-tölur í dag: 45

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband