Nú á að fórna Kúrdum í Tyrklandi

Ljóst er með þessari skyndilegu eftirgjöf Tyrka varðandi umsókn Svía að NATÓ, að Tyrkir hafa fengið fram allt það sem þeir kröfðust: Að Svíar lýsi því yfir að PKK, stjórnmála- og frelsissamtök Kúrda í austur-Tyrklandi, verði stimpluð sem hryðjuverkasamtök og fólk í þeim flokki sem hefur búið í Svíþjóð í tugi ára, verði framselt til Tyrklands til að dúsa þar í fangelsi það sem eftir er ævinnar (eða verða teknir af lífi). 
Og þetta allt til að komast í hið dýrðlega friðarbandalag NATÓ. 
Reyndar hafa Svíar verið á leið þangað í mörg ár. Þeir tóku þátt í innrásinni í Afganistan og voru með herlið þar til fyrir skemmstu - og þeir hafa einnig verið í hermannaleik í Írak og Sýrlandi ef ég man rétt - með hinum NATÓ-þjóðunum.
Frelsið er yndislegt - ég geri það sem ég vil - var sungið eitt sinn. Og enn er það sungið, þó svo að frelsishjalið sé fyrir löngu orðið innantóm orð - og hið svokallaða lýðræði á Vesturlöndum sömuleiðis. Hér er gefið skít í hvað almenningi finnst - ef honum finnst þá nokkuð því áróðurinn er búinn að gera hann heiladauðann.

Hér er svo flott grein um lygina á Vesturlöndum um þessar mundir. Lesið endilega:

https://www.ruv.is/frett/2022/06/29/loksins-getum-vid-slokkt-a-fridarsulunni-i-videy


mbl.is Söguleg stund en óviðeigandi hjá Tyrkjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 150
  • Frá upphafi: 455373

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 123
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband