Stríðsáróðurinn á fullu

Kúlulánadrottningin á í högg að sækja vegna linrar framkomu gagnvart þjóðarmorðinu á Gaza - og reynir að nota öll tækifæri til að dreifa athyglinni frá linkindinni gagnvart Ísrael.

Barnaníðingurinn Trump sömuleiðis. Nú er illa þjarmað að honum vegna sambands hans við melludólginn Epstein og klúrt bréf (undir rós) á milli þeirra. 

Svo er það hin almáttuga Ursula von der Leyen sem Trump sagði að væri valdamesta manneskja Evrópu. Hún hótar nú allsherjarstríði gegn Rússum (vegna þessara dróna sem virðast hafa villst af  leið en engan skaða gert) enda þarf hún að leiða athyglinni frá sér og sínum vandamálum, m.a. vegna einkasamnings hennar við lyfjafyrirtækið Pfizer vegna covid-19.

Já. Stjórnmálaleiðtogarnir nota allr leiðir til að æsa til stríðs gegn Rússum (vegna einhverra dróna) til að fela hræsni sína og tvískinnung gagnvart Ísrael, sem drepur fjölda manns í nágrannalöndum sínum - og svo auðvitað á Gaza á hverjum einasta degi.


mbl.is Sýni hve langt Rússar séu tilbúnir að ganga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að lepja upp áróður Ísraelshers

Allir sem fylgjast eitthvað með gjöreyðingarstríði ísraelskra stjórnvalda á Gaza vita sem er, að ástæðurnar sem stjórnvöldin gefa upp er hrein og bein lygi.
Það er á allra vitorði að það á að leggja Gazaborg algjörlega í rúst, þessa milljón íbúa borg. Þetta er auðvitað stríðsglæpur af versta tagi sem hinar ríku þjóðir á Vesturlöndum láta viðgangast. Kannski ekki nema von. Nýjustu sögusagnir herma að þar eigi að reisa Riveríu í staðinn, fyrir ríka Ameríkana og aðra vesturlandabúa. 
Enn ein ástæðan til að fjölmenna á morgun, laugardag, til að mótmæla þessum stríðsglæpum og fjöldamorðum: Þjóð gegn þjóðarmorði.

https://lifipalestina.is/gazaborg-brennur/


mbl.is Ísraelsher sprengir háhýsi í Gasaborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins?

Tíu ára plan ríkisstjórnar, í fimm greinum, sem þó hefur aðeins umboð þjóðarinnar í þrjú ár til viðbótar ... og allt til að leysa krafta þjóðarinnar úr læðingi, einkum úti á landi. 

Samt eru flest þessi áform í andstöðu við fjölmargra, ekki síst úti á landi og aðgerðum fjarstýrt af ríkisstjórninni frá höfuðborgarsvæðinu.
Fyrir það fyrsta eru það virkjunarmálin sem á að framfylgja með offorsi og ofbeldi, en kallast á fínu máli "einföldun regluverks". Þar hittir skrattinn, orkumálaráðherrann, ömmu sína fyrir, forsætisráðherrann, enda er hann einfaldlega strengjabrúða hennar. Orkumálin hafa sætt mikilli gagnrýni umhverfissamtaka, fyrir stórtæk náttúruspjöll, sem og sveitarfélaga víða um land fyrir að taka sjálfsákvörðunarrétt þeirra frá þeim.

Í öðru lagi er það þessi meinta "einföldun" á heilbrigðiseftirliti sem er einfaldlega tilskipun frá ESB og EFTA og brýtur mjög í bága við vel virkt eftirlit sveitarfélaganna, enda fengið hörð viðbrögð þaðan fyrir miðstýringartendensa ríkisvaldsins.

Í þriðja lagi er aftur talað um "orkuöflun" þannig að greinarnar eru í raun fjórar en ekki fimm.

Svo um stórframkvæmdirnar úti á landi án þess að nokkuð sé sagt um hvað þær feli í sér. Líklega er þetta enn eitt dæmið um "orkuöflun" og þá væntanlega fyrir gagnaver sem stunda peningaþvætti (bicoin-ruglið og fleira) og fyrir risatölvur á sviði gervigreindar. Þær síðarnefndu eru mjög orkufrekar og eru því mikil ógn við náttúru landsins. Enn eitt dæmið um aðgerðir í "loftlagsmálum" sem ganga freklega á náttúruauðlindirnar.
Þá eru greinarnar orðnar þrjár en ekki fjórar, hvað þá fimm!

Í fimmta lagi (þriðja?) er skipun "atvinnustefnuráðs". Þar vekur athygli að í fyrirsvari er fyrrum starfsmaður Novo Nordisk, dansks fyrirtækis sem stórgræddi á framleiðslu þyngdarstjórnunarlyfs (offitu-) en rambar nú á barmi gjaldþrots fyrir ýmsa skandala og stórlækkaðs markaðsverðs. Vinargreiði Kristrúnar við Mette Frederikssen vegna sameiginlegrar ástar þeirra á Zelensky? 
https://www.ruv.is/frettir/erlent/2025-07-29-novo-nordisk-hridfellur-eftir-uppfaerda-afkomuspa-449722

Já, fjallið/fíllinn tók jóðsótt og fæddist ... mús.


mbl.is Kristrún sýnir á spilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 75
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 69
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband