30.3.2019 | 18:16
Sjötta ástæðan ...?
Að Skúli hafi komið öllum(?) þeim fjármunum sem söfnuðust í skuldabréfaútboðinu í september (átta milljörðum) fyrir strax á eftir uppboðið í tvö félög á Cayman-eyjum, sem keyptu svo tvær flugvélar til að leigja Wow-air!
Og það voru þessi tvö félög sem kyrrsettu hluta af vélunum sem setti Wow á hausinn!!!
Flott leikflétta hjá góða, grátandi gæjanum Skúla - og aðalástæðan fyrir gjaldþrotinu?
http://www.vb.is/frettir/eignarhald-cayman-eyjum/153613/
Fimm ástæður fyrir falli WOW air | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2019 | 11:52
Ótrúleg ummæli háskólaprófessors!
Þessi ummæli um að fásinna sé að fara í verkföll innan ferðaþjónustunnar eru hlutdrægustu og ótrúlegustu ummæli sem ég hef séð lengi frá manni í stöðu sem á að gæta hlutleysis og hlutlægni í allri umfjöllun!
Hann lætur eins og ferðaþjónustan eigi að njóta sérstakra launakjara, borga laun langt undir launum fólks í öðrum atvinnugreinum (nema auðvitað að hann meini að allt láglaunafólk eigi að sitja eftir í launum meðan atvinnurekendurnir og millistéttar- og hálaunafólk eins og hann mata krókinn).
Málið er auðvitað það að ferðaþjónustan hér á landi nýtur þegar sérstakra hlunninda umfram aðrar atvinnugreinar. Borgar t.d. aðeins 11% virðisaukaskatt meðan aðrir þurfa að greiða 24,5% VASK osfrv.
Þá er þessi atvinnugrein alls ekki á flæðiskeri stödd, enda hefur verið mikil uppsveifla í ferðamennsku mörg undanfarin ár. Fyrirtækin flest hver græða á tá og fingri eins og sjá má á ársskýrslum þeirra og arðgreiðslum til eigendanna - og á öllum þeirra umsvifum í greininni.
Hótel rísa upp eins og gorkúlur á rigningarsumrum, bílaleigur skipta út bílum næstum árlega osfrv., osfrv.
Háskólafólk ætti að vera valið til starfa með vandaða fræðimennsku í huga en ekki til að ganga erinda einhverra aðila á kostnað annarra.
En því miður er mikill misbrestur á því og virðist frekar aukast en hitt. Hlutdrægni og sérplægni eykst hröðum skrefum í háskólageiranum enda útskrifast fólk úr þessum skólum nú orðið sem kann lítið sem ekkert til verka í eigin fagi!
Þetta á ekki síst við í viðskipta- og hagfræðideildum háskólanna.
Ja, svei.
Of mikill mótvindur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 30. mars 2019
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.4.): 10
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 455403
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar