Skelfilegt!

Eftir góðan sigur gegn Skotum hefði maður búist við eitthverju svipuðu frá landsliðinu gegn Norður-Írum. En ó nei! Þveröfugt. Skelfilega lélegur leikur, hægur og leiðinlegur.
Sökudólgurinn er þjálfarinn. Tekur útaf bestu leikmenn liðsins í fyrri leiknum, Mikael Ellerts og Stefán Teit, og setur inná tvö mjög slaka leikmenn, Loga Tómasar og Willum Willums.

Það eru fleiri vandamál í þessu byrjunarliði, svo sem Hákon í markinu. Hann á stóra sök á hve hægur og leiðinlegur leikur Íslands er. Stuttar sendingar, hægt spil, mikið spilað til baka. Elías Ólafs var miklu betri í leiknum gegn Skotum. Setti hraða í leikinn með löngum spyrnum fram.
Svo er auðvitað sama vandamálið með Jón Dag og venjulega. Það kemur ekkert út úr honum og hefur ekki gert lengi.
Það þarf fljóta kantmann þarna hægra megin, mann eins og Mikael Anderson. So er Andri Guðjohns ansi dapur frammi og Hákon Haralds er mjög ofmetinn leikmaður. Alltof líkamlega veikburða og tapar nær öllum návígjum. Þarf sterkan mann á miðsvæðið.
Fimm skiptingar í hálfleik. Mikael Ellerts í stað Loga, Stefán Teitur í stað Willums, Elías Ólafs í stað Hákons V, Mikael Anderson í stað Jón Dags og Ísak í stað Hákons H. Svo vantar okkur tilfinnanlega almennilegan senter.

Aðeins ein skipting í hálfleik. Arnór Trausta gerður að sökudólgi. Lengi lifi hinn geðprúði og tungulipri þjálfari íslenska landsliðsins sem kemur alltaf á óvart með liðsvali sínu (og mjög svo þróuðu "leikskipulagi"), Arnar Gunnlaugsson!!
Svo þreföld skipting á 62. mín. Daníel tekinn útaf en ekki Logi!!!
Gaman samt að fá Mikael A, Þóri Helga og Kristian Hlyns inná.
Svo ennþá meiri skemmtun í skiptingum! Albert útaf (en ekki Andri) og Sævar inná (framherji jú sem ekki veitir af).
Svo loksins er Logi tekinn útaf og loksins kemur Stefán Þórður inná. Alltof seint og alltof lélegt!
Ætli leikmenn landsliðsins séu enn að læra á þetta frábæra leikkerfi þjálfarans (hvaða leikkerfi annars?)?


mbl.is Ísland nýtti ekki liðsmuninn í Belfast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. júní 2025

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 189
  • Frá upphafi: 463737

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 164
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband