Nú, hver er munurinn?

Bæði Geronimo og bin Laden upplifðu kaldrifjuð morð á sínu fólki og grímulausa útþenslustefnu stjórnvalda í Wasington - og hófu sína vopnuðu baráttu gegn þessum morðum og kúgun.
Í útgáfu bandarískra stjórnvalda hafði Geronimo alveg jafn mörg dráp á samviskunni á sinni tíð og bin Laden er sagður hafa núna.

Svo hver er munurinn? Jú hann er einn. Geronimo var ekki drepinn þegar hann var handtekinn - en það var oft því hann slapp oft úr haldi - eins og gerðist í tilviki "bin Ladens".
Geronimo var ekki drepinn með köldu blóði, óvopnaður fyrir augunum á fjölskyldu sinni, heldur var honum hlíft.

Þetta var fyrir meira en 100 árum. Munurinn er því líklega sá helstur að ofbeldi það sem átti sér stað á tímum villta vestursins meðal bandarískra ráðamanna var miklu minna en tíðkast í dag hjá sömu aðilum.
Blóðþorstinn er orðinn miklu meiri.

Hvar og hvernig endar þessi heimsyfirráðastefna Bandaríkjamanna eiginlega?
Með útrýmingu alls mannkyns?


mbl.is Indíánar krefjast afsökunarbeiðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þetta er líka orð eins og þegur þú hoppar af kletti út í sjó GEEEROOONIMOOO!!!!

Ari (IP-tala skráð) 5.5.2011 kl. 16:09

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Torfi Kristján. Þú ert að mörgu leyti á réttu róli, að mínu mati. Indíánar eiga svo sannarlega rétt á afsökunarbeiðni frá Bandaríkjunum, og þann rétt eiga einnig kúgaðir Múslímar víðsvegar um heiminn. Indíánum var slátrað af yfirburða hvítflibba-glæpamönnum Bandaríkjanna, með köldu blóði, í réttlætis-nafni græðginnar umfram siðmennt og "kristinn" náungakærleik.

 Og viska Indíána og Múslima, og þeirra menning vanvirt út í hið óendanlega siðlausa, og óréttláta, í nafni réttlætis verðbréfa-braskara og lyfjaframleiðslu-mafíunnar!

 Obama stendur alls ekki að baki þessarar samlíkingar, tel ég.

 En hann er líklegri en flestir til að biðja Indíánana og Múslimana afsökunar á þeim svikum og aftökum, sem Bandaríkin hafa beitt þessa hópa.

 Ég viðurkenni að ég leyfi mér að efast um að Bin Landen hafi haft frjálsar hendur í öllu sem hann er sakaður um! Það er ekki réttlátt og rökrétt að kenna ávalt herteknum blórabögglum um allt sem ekki lítur vel út, í herteknum fjölmiðlum heimsins! Svo langt erum við komin á þekkingar-leiðinni í heiminum, að sjá í gegnum svikavef spillingaraflanna í heiminum!

 Þetta er mín skoðun á þessu síðasta fjölmiðla-útspili spillingar-ofuraflanna í Bandaríkjunum! En almenningur í Bandaríkjunum á allan minn stuðning, eins og almenningur í restinni af heiminum!

 M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.5.2011 kl. 16:49

3 identicon

Geronimo er algengt stríðskall þegar lagt er í hann, alveg síðan í seinna stríði og jafnvel fyrr. Oft notað af fallhlífarstökkvurum og fallhlífarhermönnum, og svo sérsveitum.

Nafn á aðgerð sem þessari getur verið hvað sem er. Geronimo er reyndar mjög lélegt nafn á þessari aðgerð, þar sem í því er vísbending um það sem hún gæti verið. "Operation Fishes" hefði til dæmis verið betra nafn (Hitler pirraði oft undirmenn sína með nafnavali sínu á aðgerðum, t.d. "Sea Lion" sem var jú innrás í Bretlandseyjar af sjó, hvað annað!)

Varðandi hina meintu aukningu í ofbeldi frá valdamanna hálfu finnst mér vera gert lítið úr indiánastríðunum, og svo því að Bandaríkjamenn fara oft ekki af stað fyrr en búið er að stugga við þeim nokkuð verulega. Japanir réðust á þá í seinna stríði og þjóðverjar lýstu stríði á hendur þeim. Þeir ætluðu ekki í það tusk, mikið betra að sitja heima og græða. Svo tók við taflið við Kommúnismann hinum meginn, sem kostaði allslags þvæling, en kommarnir áttu þó betra met í því að selja vopn og leggja undir sig lönd. Og eftir að múrinn féll eru það öfgafullir múslímar, sem eru til vandræða gagnvart öllum öðrum, Vesturlönd,Rússland, aðrir múslímar, hindúar, Kristnir, Gyðingar, o.s.frv. Palestínumenn voru ekki beinlínis að skora samúðarpunkta þegar þeir dönsuðu á götum úti og brenndu Bandaríkjafána þann dag er turnarnir féllu. Og það fauk í voldugasta herveldi heims. Við hverju er að búast? Ég hugsa að almenningur í USA syrgi ekki Bin Laden.

Jón Logi (IP-tala skráð) 6.5.2011 kl. 10:10

4 Smámynd: Heimir Hilmarsson

Það er ekkert líkt með Geronimo og Bin Laden.

Torfi segir: "Geronimo var ekki drepinn með köldu blóði, óvopnaður fyrir augunum á fjölskyldu sinni, heldur var honum hlíft."

Mexikanar dráðu fjölskyldu Geronimos, konuna hans, börnin hans og mömmu hans á meðan hann ásamt öðrum karlmönnum úr ættbálki hans voru í bæjarferð.

Bin Laden dó ekki vopnlaus, hann bæði svaraði fyrir sig með vopnum og varði sig á bakvið konu sem hann notaði sem skjöld.

Geronimo og hans þjóð báru virðingu fyrir konum, börnum og náttúrunni í heild sinni.

Bin Laden var ógnun við alla heimsbyggðina og ekki hægt að sjá að hann bæri virðingu fyrir nokkrum hlut.

Það er ekki búið að uppræta hriðjuverk þá þessi holdgervingur hriðjuverka sé allur. En Bandaríkjamenn mega vera stoltir af því að hafa losað heimbyggðina við hann.

Það er hins vegar smánarblettur á sögu Bandaríkjana hvernig þeir fóru með Indíána og það er þeim til skammar að hafa notast við nafn Geronimo við þessa aðgerð.

Það er engin afsökun að þetta sé bara nafn, þeir hefðu þá alveg frekar átt að kalla skotmarkið Lincoln, þar sem hann er nokkuð óumdeildur hvað varðar bætt mannréttindi.

Bin Laden og trúarbrögð eiga heldur ekkert sameiginlegt þá Bin Laden hafi notað trúarbrögð sem vopn í voðaverkum sínum. Islam er útbreytt í Bandaríkjunum og Evrópu. Bin Laden ber ábyrgð á dauða sennilega fleiri Islam trúar mönnum en mönnum annarra trúar. Bin Laden hefði verið jafnvondur þó hann hefði talið sig vera heilagan stríðsmann kristinna manna eða einhverra annarra.

Heimir Hilmarsson, 7.5.2011 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 11
  • Sl. sólarhring: 77
  • Sl. viku: 96
  • Frá upphafi: 460132

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 89
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband