20.10.2011 | 10:22
Hillary Clinton: Gaddafi réttdræpur!
Eins og flestir vita þá er virðing Bandaríkjamanna fyrir mannréttindum og alþjóðalögum sama sem enginn.
Steininn tók þó úr þegar Hillary Clinton lýsti því yfir, í óvæntri heimsókn hennar til Libýu, að Bandaríkjamenn létu sér það í léttu rúmi liggja hvort Gaddafi yrði drepinn eða handtekinn.
Þar með gefa bandarísk stjórnvöld grænt ljós á það að maðurinn verði drepinn án dóms og laga.
Þetta er það sem okkur hefur verið boðið upp á síðan USA varð stórveldi í heiminum, lögmál villta vestursins.
Og merkilegt er að engin marktæk andstæða er gegn þessu siðleysi sem breiðist út um heiminn. Allar þær stjórnir sem Bandaríkin og stuðningsríki þeirra hafa komið til valda á undanförnum árum og áratugum er þekktar fyrir mannréttindabrot og spillingu. Má vísa til opinberra lista yfir þær þjóðir sem eru hvað verstar í þessum sambandi, þessu til staðfestingar.
Merkilegt annars í allri umræðunni hér á landi um ofbeldisverk - og samúð með meintum þolendum - að ekkert er fjallað um ofbeldisverk vestrænna stjórnvalda á íbúum í þriðja heiminum - en einkum í arabaheiminum.
Er það dæmi um afskiptaleysi um hag annarra en þeirra sem næst manni standa, eða einfaldlega dæmi um hræsni í "andstöðunni" gegn ofbeldi?
![]() |
Fæðingarborg Gaddafi fallin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 463781
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Bandarísk stjórnvöld hafa enga lögsögu um það hvort Gaddafi verði drepinn eða ekki þannig að það er hrein heimska að kenna þeim um ef hann verður drepinn. Bandaríkin eru örugglega ekki eina ríki heims sem gefur dauðann og djöfulinn í það hvort þessi glæpamaður verður drepinn eða ekki. Og er ég þar fyllilega sammála, mér er sléttsama hvort Gaddafi, Hillary Clinton eða aðrir valdhafar verða drepnir eða ekki þegar þeir hafa framið og látið fremja aðra eins glæpi og raun ber vitni. Ég verð a.m.k. ekki með kertafleytingar á Tjörninni þótt Gaddafi verði drepinn.
corvus corax, 20.10.2011 kl. 10:44
Líbíska þjóðin mun dæma Gaddafí af 42ja ára harðstjórn hans og spillingu !
Gunnlaugur I., 20.10.2011 kl. 11:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.