14.3.2013 | 10:26
Betri þýðing!
Drottinn, ger þú mig að farvegi friðar þíns,svo að ég færi kærleika þar sem hatur er, fyrirgefningu þar sem móðgun er, einingu þar sem sundrung er, trú þar sem efi er, von þar sem örvænting er, gleði þar sem harmur er, ljós þar sem skuggi er.
Veit þú, Drottinn, að ég sækist fremur eftir að hugga en láta huggast, skilja en njóta skilnings, elska en vera elskaður, því að okkur gefst ef við gefum, við finnum sjálf okkur ef við gleymum okkur sjálfum, okkur fyrirgefst ef við fyrirgefum og fyrir dauðann fæðumst við til eilífs lífs. Amen.
Pétur snæddi með páfa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.9.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 456798
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.