20.5.2014 | 18:16
Nýjar sprengingar flugu í gegn!
Þá geta íbúarnir í nágrenni Sundhallarinnar farið að láta sér hlakka til vetrarins og næsta árs. Sprengingar og tillbehör næstu misserin!
Það er auðvitað orðið langt síðan það hristist allt og skalf þegar sprengt var fyrir bílastæðishúsi á gamla Stjörnubíósreitnum (húsi sem er ekkert notað) svo íbúar geta tekið gleði sína á ný og farið að telja nýju sprungurnar sem myndast á húsum þeirra.
Reyndar hafa menn haft ýmislegt að gleðjast yfir í millitíðinni. Fyrst sprengingarnar við Höfðatún sem bárust alla þessa leið - og lengra - og svo sprengingar og skjálftar núna þessi dægrin vegna framkvæmda við Háteigsveg/Þverholt.
Já, það er gott að Dagur borgarstjóraefni gleðst fyrir okkar hönd. Eða er það fyrir hönd verktakanna sem hann er svona glaður?
![]() |
Sundhöllin flaug í gegn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.2.): 3
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 323
- Frá upphafi: 460944
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 283
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.