11.5.2016 | 07:29
Ætli einhverjir skammist sín núna?
Kannski en eflaust ekki allir því sumir kunna ekki að skammast sín.
Fréttablaðið minnist a.m.k. ekki á þessa frétt einu orði (og auðvitað ekki hvað eigandinn Jón Ásgeir á mikinn pening í skattaskjólum (eða var það kannski konan hans?)):
http://stundin.is/frett/milljardaslod-jons-asgeirs-og-ingibjargar-i-skatta/
Gæti verið að yfirgengilegur fréttaflutningur (og vandlæting) Stöðvar tvö og Fréttablaðsins um eignir eiginkonu Sigmundar og síðan um eignir fjölskyldu forsetafrúarinnar í skattskjólum, séu tilkomnar til að dreifa athyglinni frá eigin eigendum?
Vonandi gefst nú tóm til að fara í saumanna á þessum eignum Ingibjargar og Jóns Ásgeirs - og sömuleiðis hvað fólk tapaði miklu þegar félög í þeirra eigu, sem almenningur hafði fjárfest í, voru tæmd og sett í gjaldþrot.
Það á auðvitað einnig við um Björgólf Þór, Ólaf Ólafsson og fleiri útrásarvíkinga. Er ekki tími til kominn að láta þá svara til saka fyrir þetta - og fleira - og sækja peningana þeirra í skattaskjólin?
Hátt í 400 milljónir í skatta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 159
- Frá upphafi: 458377
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 139
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.