9.8.2017 | 11:43
Undarleg fréttamennska þetta
Ætli íbúar í Raqqa séu ekki frekar að flýja loftárásir Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra á borgina? Nýjasta fréttin, sem hefði verið eðlilegra að segja frá núna, er sú að 29 almennir borgarar voru drepnir í gær í loftárás Bandaríkjamanna á borgina, þar af 16 börn. Fjölmargir eru særðir eftir loftárásirnar þannig að mannfall óbreyttra borgara á eftir að fjölga umtalsvert.
http://www.ruv.is/frett/29-obreyttir-borgarar-fellu-i-arasum-a-raqqa
Svo mætti auðvitað bæta við að borgin er í rúst eftir þessarar lofárásir, rétt eins og Mósul í Írak og fleiri borgir þar í landi og í Sýrlandi, nýtískulegar jafnt sem fornar og meira og minna friðaðar borgir þar sem áður bjuggu hundruð þúsundir manna og sumstaðar yfir milljón manns.
Eyðileggingin og mannfall almennra borgara í stríðinu gegn "hryðjuverkum" er farin að líkjast hörmungunum í seinni heimstyrjöldinni - og þeim staðreyndum er vandlega haldið leyndum fyrir almenningi í dag, rétt eins og þá.
Flýja skelfinguna í Raqqa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 73
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 61
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.