19.1.2020 | 14:42
Ótrúleg hlutdrægni hjá RÚV
Einar Örn Jónsson, sá sem lýsir öllum leikjum íslenska liðsins, er ótrúlega hlutdrægur hvað varðar einstaka leikmenn íslenska liðsins. Aron Pálmarsson alltaf jafn stórkostlegur, sama hvaða gloríur hann gerir, og svo varla minnst á aðra.
Sama í "settinu" þar sem Aroni er hrósað í hástert og Alex reyndar einnig (sem á það meira skilið).
Varla er minnst á Janus Daða Smárason sem þó átti stórleik og var markahæstur með 8 mörk.
Hann var loksins í byrjunarliðinu og lék nær allan leikinn, hefur algjörlega tekið yfir stöðuna sem leikstjórnandi, sem Gummi Gumm þrjóskaðist við að reyna Elvar Örn í þessari stöðu lengi vel framan af mótinu.
Þvílíkur munur á liðinu með Janus á miðjunni.
Sigur gegn Portúgal í Malmö | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 99
- Frá upphafi: 458378
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 85
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.