14.2.2020 | 12:02
Örfá hverfi?
"eins og spár gerðu ráð fyrir"? Gilti ekki rauð viðvörun í nótt á öllu höfuðborgarsvæðinu en vindur náði varla stormstyrk nema á örfáum stöðvum?!
Veðurstofan hefði mátt spara sér rauða litinn því hvergi var ofsaveður, hvað þá fárviðri, ekki einu sinni á Kjalarnesi! Og hvað varð um blindbylinn sem spáð var?
Dæmi um þær stöðvar þar sem ekki var stormur: Reykjavík (Veðurstofutúni), Garðabær (Urriðaholt), Straumsvík og Víðidal.
Við Korpu stóð stormurinn aðeins í tvo tíma (mest 22 m/s) og sömuleiðis á Reykjavíkurflugvelli (mest 20 m/s).
Þetta var nú allt óveðrið á höfuðborgarsvæðinu.
https://www.vedur.is/vedur/athuganir/kort/hofudborgarsvaedid/#group=100&station=1479
![]() |
Vindur að ganga niður á höfuðborgarsvæðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 3
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 90
- Frá upphafi: 463551
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 82
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.