17.3.2022 | 10:59
Að kynda undir stríðsáróður
Fréttir af stríðinu í Úkraínu breytast ekkert. Stanslaus áróður gegn Rússum - og Úkraínu í hag. Upplýsingar frá Rússum kallast falsfréttir, og lokað fyrir þær eins og á Fésbók, en sérhverjum áróðri frá hinum nasistísku her- og stjórnvöldum í landinu trúað eins og nýju neti. Hver er til dæmis þessi "neyðarþjónusta", kannski hin illræmda leyniþjónusta í Úkraínu þar sem ný-nasistar ráða öllu?
Það var mjög flott viðtal við Sólveigu Önnu Jónsdóttur á ruv.is í gær, sem enn má lesa þar. Þar kemur hún inná stríðshyggjuna sem hún upplifði þegar hún bjó í Bandaríkjunum á þeim tíma sem árásin var gerð á tvíburaturnana. Hún fylgdist með þeirri skelfingu sem greip um sig og atburðarásinni í kjölfarið sem henni hryllti við:
Innrásin í Afganistan, það glæpsamlega og hræðilega stríð, og svo innrásin í Írak. Ég sé þarna hvernig heilt samfélag raunverulega sturlast, hvernig allir pólitíkusar að örfáum undanskildum taka bara þátt í þessu, að hella olíu á þennan stríðseld. Það verður bara algjörlega sjálfsagt að gera glæpsamlegar innrásir byggða á lygum, inn í lönd þar sem saklaust alþýðufólk er myrt í hundraðþúsundatali, þar sem lönd eru lögð í rúst ... Ég fer að fylgjast markvisst með fréttum um þetta og átta mig á því hvað heimsvaldastefnan þýðir, hvaða áhrif hún hefur, hve toxic og hræðileg þjóðernishyggja er. ... Allt í einu fer ég að skilja hve skelfilegt það er þegar þjóðríki, menningarheimar og lönd leyfa sér að tapa sér í stríðshyggju og hryllingi.
https://www.ruv.is/frett/2022/03/16/haetti-vid-ad-fermast-vegna-samskipta-vid-olaf-skulason
Þessi orð eiga ekki síður við í dag, en þegar Kaninn og Vesturlönd réðust inn í Miðausturlönd. Og ástandið virðist bara eiga eftir að versna vegna stríðsáróðursins og -hyggjunnar hér á Vesturlöndum. Það er greinilega verið að undirbúa almenning undir alheimsstríð og fá hann til að trúa því að það sé nauðsynlegt (til bjargar friðnum!).
Þrír særðir og einn látinn eftir árás á íbúðablokk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.11.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 458039
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.