16.6.2009 | 12:46
Hvað með Perú?
Áhyggjur vestrænna ríkisstjórna vegna mótmælanna í Íran kemur nokkuð á óvart miðað við skeytingarleysið sem þessu sömu stjórnvöld sýndu við fréttum af drápum perúískra stjórnvalda á indíánum sem voru að mótmæla eyðingu regnskóga landsins og stórfelldri mengun vegna olíuvinnslu vestrænna stórfyrirtækja á Amazonsvæðinu.
En þetta kemur auðvitað ekkert á óvart. Allir Íslendingar hafa orðið vitni að því nú í kreppunni hvernig fjölmiðlar er nýttir í pólitískum og fjárhagslegum tilgangi í þágu nýlíberalismans.
Og sama gerist úti í hinum stóra heimi. Íran leyfir enga erlenda "fjárfestingu" í landinu - og hefnist nú fyrir það meðan Garcia, forseti Perú, kemst upp með fjöldamorð á þegnum sínum án þess að nokkur (nema lágværar hjálparstofnanir) hreyfir andmælum.
Já, fréttaflutningur vestrænna fjölmiðla af niðurstöðum kosninganna í Íran er ótrúlega hlutdrægur. Þeir gefa sér að niðurstöðurnar séu svindl, vegna þess að Ahmadinejad lætur leiðinlega við Kanann og við Ísrael. Hvað gerist næst, innrás eins og í Írak??
Svo eru Japanir að hafa "áhyggjur". Þeir studdu jú nýafstaðin fjöldamorð á Tamílum á Sri Lanka - já gerðu þau möguleg. Þvílík hræsni!
Áhyggjur af ástandinu í Íran | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 99
- Frá upphafi: 458378
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 85
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er nokkuð til í þessu, fréttir eru matreiddar ofan í okkur í mörgum tilvikum.
Garðar Valur Hallfreðsson, 16.6.2009 kl. 16:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.