27.8.2009 | 13:08
Landssamtök landeigenda??
Þetta nafn hljómar nú eins og hér séu allir stórbokkarnir, sem keypt hafa upp jarðir landsins undanfarin ár og sprengt upp verðið, saman komnir í samtökunum. Reyndar mun ekki svo vera heldur eru þetta samtök sem voru stofnuð til að andæfa óbyggðalögunum.
Gagnrýni samtakanna eru annars mjög máttlaus. Fyrir það fyrsta er einn nefndarmanna, Jóhannes Sigfússon (já einmitt, bróðir fjármálaráðherrans!), varamaður í stjórn samtakanna.
Í öðru lagi hefur "viðskiptafrelsi" það sem samtökin mæra svo mjög, leitt til mikillar fækkunar lögbýla og þar með fólksflótta úr sveitum og óheppilegri skuldastofnunar þeirra bændabýla sem eftir standa (lán sem eru að sliga stóran hluta bænda sem stækkað hafa við sig eða þurft annarra ástæðna vegna að kaupa upp jarðir á uppsprengdu verði). Segja má að landbúnaður á Íslandi í dag sé gjaldþrota einmitt vegna þessa "viðskiptafrelsis".
Einnig má benda á það að í Noregi er allt annað fyrirkomulag fyrir hendi en hér heima. Þar er búsetuskylda á lögbýlum, þ.e. ef býli með framleiðslu eða eru skráð sem slík eru sett í sölu, þá er kaupandi skyldugur til að hafa fasta búsetu á jörðinni og stunda þar búskap. Þetta gerir að jarðnæði í Noregi fæst á góðu verð. Kerfið er þannig hvetjandi hvað áframhaldandi búskap varðar og fyrir að halda sveitum landsins áfram í byggð (sem sé hluti af virkri byggðarstefnu stjónvalda).
Hér heima hefur hins vegar frjálshyggjan ríkt á þessu sviði sem öllum öðrum og skilið eftir sig sviðna jörð -stílað fyrir auðjöfrana og þeirra bænda sem hugsuðu einungis um eigin skammtíma gróða. Og auðvitað var það Framsóknarflokkurinn sem kom á þessum ólögum.
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 159
- Frá upphafi: 458377
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 139
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.