15.11.2016 | 17:31
Birkir Már Bjarnason?
Birkir Már er reyndar Sævarsson. Nema að átt sé við hinn Birkinn í landsliðinu, sem er Bjarnason. Það er þó ólíklegt því Heimir landsliðsþjálfari gaf það út að hann myndi byggja á leikmönnum sem spila á Norðurlöndunum, þ.e. í þeim deildum þar sem leiktíðinni er lokið (sænsku og norsku).
Þó má benda á að Ólafur I. Skúlason, Arnór I. Traustason, Rúnar M. Sigurjónsson, Viðar Ö. Kjartansson, Ari F. Skúlason og Sverrir I. Ingason eru allir enn að spila í sínum deildum, og eru samt valdir, þ.e. meira en helmingur liðsins!
Þá er skrítið að leikurinn sé ekki sýndur á RÚV því áhuginn á karlalandsliðinu er mikill um þessar mundir eftir EM í sumar.
Tíu breytingar á liði Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2016 | 12:27
Er byrjunarliðið leyndarmál?
Það eru fleiri vináttulandsleikir í kvöld, svo sem hjá Svíum og Dönum og það hörkuleikir: Ungverjaland-Svíþjóð og Tékkland-Danmörk. Frændur okkar eru búnir að birta byrjunarliðin hjá sér en ekkert bólar á því hjá okkur.
Það er að venju því landsliðsþjálfararnir okkar hafa alltaf verið seinastir að tilkynna lið sín. Skrítið að það eigi einnig við í vináttuleikjum.
Svo er auðvitað spurning af hverju sé verið að leika gegn Möltu en ekki einhverju sterkara liði. Ísland er jú hærra á styrkleikjalistanum en bæði Svíar og Danir og ætti því að geta valið úr mótherjum.
Mæta Möltu í fimmtánda sinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 15. nóvember 2016
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.4.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 49
- Frá upphafi: 455378
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar