Er Guðni hlutdrægur?

Ætli forsetinn hafi sagt það sama við Bjarna, að hann yrði að hafa "hraðar hendur" við stjórnarmyndunarviðræðurnar eða sett honum nokkra daga tímamörk?
Benda má á að það tók Framsókn og Sjallana 26 daga að mynda nýja stjórn 2013 en Katrín á helst að vera búin að því á innan við viku!

Þá verður það fróðlegt að sjá hvort Guðni segir, eftir nokkra daga, það sama um stjórnarmyndunartilraun Katrínar og hann sagði um tilraun miðhægri flokkanna, þ.e. að hann hafi vissulega bundið nokkrar von­ir við að miðvinstri umræðurnar skiluðu ár­angri.

Kannski hefur, og er, það Guðna forseta óljúft að fela formanni VG stjórnarmyndunarumboðið, því sá flokkur er eflaust í hans augum "óvinur ríkisins" rétt eins og fyrirrennarar hans voru, Sósíalistaflokkur alþýðu og Alþýðubandalagið, að mati safnfræðingsins Guðna Th. Jóhannessonar.


mbl.is „Þarf að hafa hraðar hendur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. nóvember 2016

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 455380

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband