12.6.2016 | 17:49
Allt í lagi en ...
Leikur íslenska liðsins batnaði er leið á fyrri hálfleikinn eða með innkomu Rúnars Kárasonar (og eftir að hann hafði klúðrað tveimur fyrstu skotunum!). Ógnunin með Ásgeir Örn í þeirri stöðu er lítil sem enginn (en hann er betri í vörn en Rúnar!).
Vandamálið er þó hið sama og áður, þ.e. skiptingar milli sóknar og varnar. Íslenska liðið er eflaust eitt fárra í fremstu röð sem á ekki góðan línumann sem getur spilað vörn (Vignir er góður varnarmaður en ekki eins góður á línunni - og nú er hann meiddur).
Þá var Einar Örn að hrósa Aroni Pálma fyrir góðan varnarleik en Geir þjálfari var greinilega ekki á sama máli og er farinn að láta Aron aðeins spila sóknina. Aron á svo að venju misjafna leiki með landsliðinu á meðan hann er sagður einhver besti spilarinn úti í hinum stóra heimi.
Tvær skiptingar milli sóknar og varnar er einfaldlega einni of mikil - og kemur það mjög niður á liðinu. Finna þarf sterkan línumann sem einnig er sterkur í vörn. Þá getur íslenska landsliðið orðið sterkt aftur.
Naumt veganesti til Porto | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 12. júní 2016
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.5.): 3
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 455588
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 40
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar