28.6.2016 | 06:51
Frábær maí?
Eitthvað er nú Sveinn Rúnar illa að sér í veðurfræðum!
Maí í ár hefur ekki verið neitt sérstakur. Í Reykjavík var meðalhitinn 6,6 stig sem er -0,3 stigum undir meðallagi síðustu 10 ára.
Þá er ekkert sjálfgefið að góður maí-mánuður gefi góða berjasprettu. Í hitteðfyrra var meðalhitinn í maí 8,1 stig og sætukopparnir lofuðu svo sannarlega góðu, enda sólríkur mánuður þá.
Síðan fór að rigna og sást varla til sólar næstu tvo mánuði - og berjasprettan var engin!
Það þarf nefnilega sól til að sætukoppar verði að grænjöxlum og grænjaxlarnir að berjum.
Stefnir í frábært berjaár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 28. júní 2016
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.5.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 455586
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar