Yfirburðir?

Þetta er nú nokkuð skrítin lýsing á fyrri hálfleiknum því það var ekki fyrr en undir lok hans sem Ísland fór að hafa yfirburði. Eins og venjulega var talsvert bil á milli miðju og varnar sem gerðu það að verkum að Liechtensteinar áttu nokkur færi (Arnar Grétarsson lýsti einu atvikinu ágætlega). 

Aðal vandamálið er enn hægra megin hjá íslenska liðinu. Jóhann Berg er það einfættur að hann er einfaldlega á röngum kanti, auk þess sem hann er lengi búinn að vera slakur í landsleikjum.
Það má því alveg fara að gefa honum frí. Sem betur fer er það gert núna í seinni hálfleiknum þegar Theodór Elmar kemur í stað hans.


mbl.is Kvöddu með öruggum sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frekar ótrúverðugt!

Þetta virkar nú sem allómerkilegur fyrirsláttur!
Fyrirtækinu hlýtur að hafa verið ljóst hver tilgangur ferðarinnar var. Ferðalangarnir höfðu jú með sér skotvopn í þjóðgarð þar sem öll notkun slíkra græja er bönnuð! Það gat fyrirtækinu ekki hafa yfistsést!

Einu "mistökin" voru því ekki að tilkynna um þessa ferð heldur einnig að flytja menn með vopn, net og fleiri ólögleg veiðarfæri.

Svo það er spurning hvaða gildi það eru sem þetta fyrirtæki vill standa fyrir. Kannski sýndarmennsku og hræsni - og að græða sem mest og sama hvernig?


mbl.is Ekki á vegum Strandferða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. júní 2016

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 455596

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband