Birgir Þórarinsson og fjöldamorðin á Gaza

Birgir Þórarinsson fyrrum þingmaður Miðflokksins, sem hljóp svo yfir í Sjálfstæðisflokkinn degi eftir síðustu kosningar, hefur áður verið sér til skammar með réttlætingu sinni á fjöldamorðum Ísraelshers á Palestínumönnum á Gaza. Í dag birtist grein eftir hann í Mogganum þar sem hann setur útá mótmælin á Austurvelli vegna blóðbaðsins á Gaza. Tekið skal fram að Birgir hefur aldrei á neinn hátt gagnrýnt framferði Ísraelshers.
Birgir þessi var nýlega valinn formaður Hollvinafélags Hallgrímskirkju í Saurbæ, líklega vegna setu sinnar á Alþingi svo að hægara verði að sækja peninga til framkvæmda við Saurbæ í Hvalfirði, þar sem sr. Hallgrímur Pétursson sat lengi og orti þar m.a. Passíusálmana.
Hætt er við að skáldpresturinn hafi snúið sér við í gröfinni ef hann hefði heyrt af þessu og tautað fyrir munni sér vers úr sálmunum: „Margur upp árla rísa / ei geta sofið vært, / eftir auð heimsins hnýsa. / Holdsgagnið er þeim kært.“

Þá kemur einnig í hug meint "gyðingahatur" sr. Hallgríms sem virðist hafa átt rétt á sér miðað við þann ofbeldisfasisma sem stjórnvöld í Ísrael sýna nágrönnum sínum þessa dagana. Ástæða er til að rifja þau upp vegna þessarar setu Birgis í Hollvinafélagi prestsins: "þú veist ei hvern þú hittir þar, / heldur en þessir Gyðingar."

Tekið skal þó fram að ekkert gyðingahatur er að finna í Passíusálmunum. Skáldið varar einungis við því að fylgja ofbeldisfullum yfirvöldum í blindni eins og þeim sem eru við völd í Ísrael nú - og voru þar einnig fyrir tæpum 2000 árum. 


mbl.is „Verið helsti samkomustaður mótmæla í áraraðir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðleysi prófessorsins

Það er ótrúlegt hvernig prófessorar við HÍ bregðast við gagnrýni á stofnunina og á vini sína en þessi læknaprófessor er þó eitthvað versta dæmið. Svo er hræsnin yfirgengileg. Ríkið á að borga þennan viðbjóð en læknirinn er algjörlega fríaður, sem er reyndar ekkert nýtt hvað starfsmenn Landspítalans varðar. Spítalinn er sökudólgurinn en ekki starfsmennirnir sem brjóta af sér eða sýna vítaverða vanrækslu og/eða vanhæfni.

Svo er það auðvitað ótrúleg athyglissýki Tómasar Guðbjartssonar sem hér er rakin nákvæmlega: 

https://www.ruv.is/utvarp/spila/thetta-helst/33405/9uid2d

 

 


mbl.is „Persónuárás“ á Tómas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hryðjuverkasamtök"?

Mogginn gerir það ekki endasleppt í þjónkun sinni við Kanann og við Ísrael. Kallar Hamas ítrekað hryðjuverkasamtök þó svo að pólitískur armur samtakanna séu hin löglega stjórn Gaza, kosin í lýðræðislegum kosningunm. Svo er jú Gaza hluti af Palestínu sem Ísland hefur viðurkennt sem sjálfstætt ríki. 
Þessi maður, sem morðóðir Ísraelsmenn drápu, hefur þannig sömu stöðu í stjórn Gaza eins og Bjarni Ben hefur á Íslandi, pólitískur næstráðandi síns eigin lands. 

Þessi árás er auðvitað ekkert annað en svívirðilegt brot á alþjóðasáttmálum, hreinn og beinn stríðsglæpur, svona svipað ef Rússar dræpu næstráðandi mann í Úkraínu - af yfirlögðu ráði.
Hætt er þá við að eitthvað heyrðist í leppfjölmiðlum NATÓ, ESB og Kanans, miðli eins og Mogganum og reyndar flestum öðrum hérlendum miðlum.
Hér, sem reyndar annars staðar á Vesturlöndum, er sífellt tönglast á orðinu "stríð" milli Hamas og Ísrael, en aldrei um innrás Ísraelsher í Gaza og stórfelldar loftárásir þeirra á Vesturbakkann, Líbanon og Sýrland.
Hins vegar er aldrei talað um stríð milli Rússa og Úkraínumanna heldur alltaf um hina "stórfelldu" innrás Rússa í Úkraínu. Já, tvískinningurinn er mikill í vestrænum fjölmiðlum og ekki síst hér á landi.

Kannski kominn tími til að Mogginn fari að sýna sitt rétta andlit, rétt eins og hann gerði á tímum kalda stríðsins og stuðningi blaðsins við stríðsglæpi Bandaríkjamanna í Víetnam, Írak og Lýbíu sem og annars staðar? En ekki er það þeim til hróss - hvorki þá né nú. 

 


mbl.is Næstráðandi Hamas felldur í drónaárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"broskall með rjóðar kynnar"?

Það ætti að vera lágmark að blaðamenn geti skrifað einföldustu orð eins og "kinnar" rétt. En svo er greinilega ekki.
Þetta dæmi vekur upp spurningar um menntakerfi þjóðarinnar, svo sem íslenskukennslunnar. Er þá auðvitað nærtækt vísa til Pisa-könnunarinnar sem sýnir að lesskilningur unglinga verður sífellt lélegri og samanburður við aðrar þjóðir sífellt neikvæðari.

Því er stórfurðulegt að vita til þess að fyrrum háskólaprófessor í íslensku skuli ekkert sjá athugavert við það að málvitund þjóðarinnar virðist á hraðri niðurleið. Allavega má ráða það af viðbrögðum hans við gagnrýni á málfar fjölmiðlafólks.

Lesendur leyfðu sér nefnilega að hneykslast á setningu sem birtist í frétt af nýliðnu gosi: "kvikan sem spúst hefur". Þessar athugasemdir fannst prófessornum fyrrverandi "gjörsamlega óþolandi" og taldi þær vera allsherjar árás á okkar frábæra unga fólk. Reyndar nefndi enginn gagnrýnandinn ungt fólk sérstaklega en leyfði sér að gagnrýna skólakerfið (sem má auðvitað ekki hjá þessum háu herrum uppi í Háskóla). 
Prófessornum finnst eflaust að sér vegið því hann hefur gengt lykilstöðu til margra ára við að ala upp menntafólk til að tala og skrifa almennilega íslensku, eða það hefði maður haldið af prófessor í íslenskufræðum. Er nema von að lesskilningur og málfræði þjóðarinnar fari stórum hrakandi? Meðan íslenskan á þannig vini þarf hún enga óvini:

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/12/23/mer_finnst_thetta_gjorsamlega_otholandi/

 

 


mbl.is Hvetur ferðamenn til að bóka flug fyrir næsta gos
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitinu komið fyrir bæjarstjórann

Ljóst er að bæjarstjórinn í Grindavík, Fannar Jónasson, er orðinn valtur í sessi. Í gær virtist hann vera einn fárra sem taldi ástandið í Grindavík þannig að ekki væri einu sinni óhætt að koma til bæjarins, hvað þá að taka aftur upp búsetu þar. Í dag er íbúunum hins vegar leyft að flytja aftur heim!!

Yfirlýsing hans, frá því 20. des. (eða fyrir tveimur dögum), um að leikskóla- og skólastarf muni ekki fara fram í bænum fyrr en í fyrsta lagi eftir næsta vor, þýðir einfaldlega það fyrir foreldra með börn á þessum aldri að það getur ekki flutt aftur á staðinn fyrr en í fyrsta lagi næsta sumar.
Reyndar sagði hann þetta strax í viðtali þann 16. nóvember og er þannig greinilega einn þeirra sem á erfitt með að skipta um skoðun eða viðurkenna að hafa haft rangt fyrir sér.

Athyglisvert er að bæjarstjórinn hefur fengið mikið lof í fjölmiðlum fyrir frammistöðu sína undanfarið. Hann er Sjálfstæðismaður og því talað um að hann sé tilvalinn leiðtogi flokksins í Suðurkjör­dæmi við næstu kosningar (en ekki sjálfur dómsmálaráðherrann!)!
Samt hefur verið kvartað undan samstarfserfiðleikum við hann, af starfsmönnum bæjarins: https://heimildin.is/grein/7234/

Það mun varla breytast við þessa framkomu Fannars - að vilja loka bænum fram á vor hið minnsta - og hætt við að íbúum finnist lítið til leiðtogahæfileika hans koma.


mbl.is Grindvíkingar fá að halda jólin heima hjá sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fær þá fólkið að fara heim?

Þessum gosræfli, sem byrjaði svo kröfuglega en reyndist svo enn meiri ræfill en hin þrjú gosin á undan, lauk mun fyrr en reyndustu eldfjallafræðingar þorðu að vona, vísindamenn sem Almannavarnir tóku ekkert mark á.
Undangenginn sólarhringur eða svo hefur verið einn allsherjar farsi. Neyðarástandi var lýst yfir og nýtt hættumatskort frá Veðurstofunni birt fyrir tæpum tveimur dögum (19. desember, kl. 17) og átti að gilda til 28. desember. Íbúum í Grindavík var bannað að fara til bæjarins og öllum vegum þangað lokað! Rétt um sólarhring síðar var kortinu breytt (nánar tiltekið kl. 18 í gær, þann 20. des.), vegir opnaðir að mestu og fólki leyft að líta eftir eignum sínum á dagtíma. Samt var hættustigið ekki lækkað mikið, það er aðeins úr því að vera "mikið" í að vera "töluvert". Þá var og aðeins talað um að líkur á "gosopnun" hafi minnkað!
Líklegt má telja að enn eitt hættumatið og -kortið verði birt innan skamms, það þriðja á rúmum þremur sólarhringum og verður fróðlegt að sjá hvernig það lítur út.

Ljóst er að þeir sem hafa staðið fyrir þessum lokunum er alls ekki starfi sínu vaxnir og hljóta að verða dregnir til ábyrgðar ef allt er eðlilegt (sem er auðvitað ekki í þessu furðulega samfélagi okkar).
Sá aðili, sem ber mest ábyrgð á klúðrinu, er ríkislögreglustjóri sem er yfirmaður Almannavarna og gaf út þessar lokunarskipunar, ásamt lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
Vert er að benda á að fyrirrennari hennar (stjórinn er jú kona) í starfi var látinn hætt vegna vanhæfni eftir að nær allir lögreglustjórar landsins kröfðust þess.
Því er ekki óeðlilegt að krefjast þess að Sigríður Björk Guðjónsdóttir verði einnig látin taka poka sinn (hún fékk jú stöðuna, eins og aðrar stöður sínar í stjórnkefinu, án auglýsingar - og þannig án nokkurs hæfnismats).
Einnig er ljóst að stokka þarf upp starfsemi Veðurstofunnar sem hefur verið helsti hvati þessarar ofstjórnunar. Það ætti að vera hægt með nýjum yfirmanni sem brátt verður ráðinn. Vonandi verðu sú ráðning á þeim forsendum en ekki einhver vinaráðning (nepótismi), sem virðist jú vera svo vinsæl um þessar mundir.


mbl.is Eldgosinu er lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blekkjandi mynd

Efsta myndin sem birtist hér og sýnir hraunið í um þrjá eða fjóra kílómetra í loftlínu frá Grindavík, er blekkjandi að því leyti að hún jafnar út landslagið. Þarna eru auðvitað fyrirstöður eins og Þorbjörninn og fleiri fjöll, enda hefur verið talað um að aðeins syðsti (austasti?) hluti Grindavíkur væri í hættu ef ólíklega vildi til að hraun færi að streyma í átt að bænum (Þórkötlustaðahverfið).
Það eru flestir jarðvísindamenn sammála um að afar ólíklegt sé að slíkt gerist - og vilja jafnvel meina að gosið sé að fjara út, standi varla fram að jólum. Má þar nefna prófessorana Magnús Tuma Guðmundsson, Ármann Höskuldsson og Þorvald Þórðarson! 

Þrátt fyrir það gefur Veðurstofan, og þar með Almannavarnir, út nýtt hættumat fyrir svæðið og er þá Grindavík skyndilega þar inni. Jafnframt er lýst yfir neyðarástandi á svæðinu sem fær lögreglustjórann á Suðurnesjum að banna íbúum að koma til bæjarinnar í meira en viku og lokar jafnframt öllum vegum sem liggja til hans!! Það munar ekki um minna!
Er slíkt valdboð, sem getur ekki kallast annað en valdníðsla á hæsta stigi, er nær einstætt í sögu þjóðarinnar - og "almannavarna" - og er þó um margar slíkar geðþóttaákvarðanir að ræða. Afsökunin er: "við förum að ráðum "vísindamanna", sem er í raun aðeins einn maður á Veðurstofunni.
Umrædd mynd birtist reyndar fyrst á vef danska sjónvarpsins:
https://www.dr.dk/nyheder/udland/se-de-vilde-billeder-fra-vulkanudbruddet-paa-island

 


mbl.is Myndir sýna nálægðina við Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn þrjóskast Benni við!

Einungis þriðjungur upphaflegu sprungunnar var virkur á hádegi í dag eftir að gosið hófst (um hálf-ellefu í gærkvöldi)! Þetta kemur meira að segja fram í tilkynningu frá Veðurstofunni. Hraunflæði er um það bil fjórðungur af því sem það var í byrjun. Gosvirknin er nú einangruð við miðbik þeirrar sprungu sem opnaðist í gærkvöldi. Lítið er að gerast við syðri hluta hraunsins (það er næst Grindavík).

Það stefnir í svipað gos og hafa verið - gos sem almennt hafa verið kölluð "óttalegir ræflar".

Benedikt Ófeigsson hjá Veðurstofunni er hins vegar sá sem málar skrattann mest á lofti og er yfirleitt á þveröfugu máli við aðra jarðvísindamenn.
Vandinn við það er sá að hann er jafnframt starfsmaður Almannavarna og sá “sérfræðingur” sem sú stofnun byggir fyrst og fremst ákvarðanir sínar á (les Víðir auðvitað, einræðisherrann). Sýslumaðurinn og bæjarstjórinn elta svo þessar öfgar - og láta enn eins og stórhætta sé á ferðum!
Af orðum þeirra mætti ráða að í Grindavík verði aldrei búið aftur. Það getur jú alltaf gosið þar, þó að það sé kannski ekki fyrr en eftir nokkur ár - eða aldir! 

 


mbl.is Nýjar sprungur gætu opnast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grindavík sloppið!

Jæja, loksins gaus og það á heppilegum stað. Reyndar var því spáð af "sérfræðingunum" að líklega myndi gjósa þarna ef af gosi yrði. Svo þeir höfðu rétt fyrir sér að því leyti.
Þeir á Veðurstofunni fagna eflaust eldgosinu og segja: "hvað sagði ég?" en það losar þá þó ekki úr snörunni.
Það að halda rýmingunni áfram þetta lengi vegna meints landsris í Svartsengi, er nefnilega enn eitt ýkta dæmið um "allur er varinn góður"-viðhorfið. Gosið, sem reyndar er að fjara út nú þegar eftir nokkra klukkutíma, var aldrei líklegt til að koma upp í Grindavík og enn síður núna þegar það loksins kom.
Þannig að ég hvet íbúana að gefast ekki upp á borgaralegri óhlýðni sinni, snúa aftur til bæjarins og halda jólin þannig heima hjá sér. Þessu er ekki síst beint til Ólafs veitingamanns, sem hefur gefist upp í bili og flúið í Ölfusborgir!
Hann hefur allan tímann haft rétt fyrir sér sem og Haraldur Sigurðsson. Það er engin hætta á ferðum!:

https://www.visir.is/g/20232505232d/-stundum-verdur-madur-bara-ad-kyngja-svona-logudu-

 


mbl.is Syðsti hluti gangsins að deyja út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmdur rasisti öryggismálaráðherra í Ísrael

Nýjustu fréttir frá Ísrael herma að ráðherra öryggismála landsins, hægri öfgamaðurinn og formaður últra hægriflokks sem situr í ríkisstjórn, hóti að segja sig úr stjórninni og fella hana þar með ef ekki verður haldið áfram að drepa almenna borgara á Gaza!
Þessi ráðherra var frægur á sínum tíma fyrir að skjóta almenna borgara í Palestínu - og finnst greinilega ekkert tiltökumál að herinn fái einnig að gera slíkt hið sama áfram.

Ríkisstjórnin sem nú er  við völd í Ísrael er hægri-öfgafyllsta og þjóðerniskenndasta sem nokkru sinni hefur setið í landinu og er þá mikið sagt. 
Hægri flokkur Netanyahu tókst að lokum að mynda þessa ríkisstjórn með stuðningi flokka yrst á hægrivængnum.
Og eins og allir vita, en enginn vill segja, þá voru það Bandaríkjamenn sem á sínum tíma komu þessum hægri-öfgasamtökum á laggirnar sem gífurlegum fjárframlögum (rétt eins og þeir gerðu í Afganistan með Talibanana). Sú þjóð hefur mikið á samviskunni með að styðja við fasismann í heiminum. Og stjórnvöld á Vesturlöndum feta í þessi fótspor eins og hlýðnir hundar.
Svo er auðvitað að bíða eftir fundinum í Öryggisráðinu í kvöld um tafarlaust vopnahlé á Gaza - og hvort Kaninn muni beita neitunarvaldi sínu í annað sinn á stuttum tíma (sem hann auðvitað gerir). Vonandi fer fólk nú að sjá að stríðið í Úkraínu er rekið á sömu forsendum:

https://www.dr.dk/nyheder/udland/ny-israelsk-regering-paa-vej-racismedoemt-bevaebnet-politiker-staar-til-blive

 


mbl.is Óeðlilegt ef Rúv hlustar ekki á ákallið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 135
  • Frá upphafi: 455512

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 122
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband