Færsluflokkur: Dægurmál

Að "tala meiningu" sína

Jón Gnarr er ekki alltof sleipur í íslenskunni. Maður segir meiningu sína, en talar hana ekki. Annars er þetta viðtal við Gnarrinn frekar klént yfirklór hjá honum vegna óheppilegra ummæla hans um Katrínu og Bjarna Ben varðandi forsætisráðherrakapalinn: "Ég hef ekk­ert út á Bjarna Bene­dikts­son að setja."
Nokkuð hlálegt yfirklór auðvitað miðað við undirskriftasöfnunina gegn Bjarna, sem vel yfir 40.00 manns hafa skrifað undir. Populismi svo sem hjá Gnarr en hann hefur þó vit á því að sjá eftir þessum ummælum. Þau eru frekar óheppileg, ef hann verður forseti, þ.e. að hafa tekið undir það að forsætisráðherrann sé persona non grata og viljað hann í burtu.
Jón er þar með skárri en Baldur Þórhalls sem ekki hefur dregið til baka eða afsakað dónaleg ummæli sín um Katrínu Jakobsdóttur. Sá náungi kann ekki mannsiði og hefur ekkert að gera á Bessastaði.


mbl.is Kveðst tala af virðingu: „Ég er enginn dóni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Grindavíkurbær að greiða fyrir skólagöngu grindvískra barna í öðrum sveitarfélögum?

Þetta er nokkuð sérstakt. Fyrir það fyrsta er undarlegt að blása af skólastarf í Grindavík þegar hætt gæti alfarið að gjósa nú eftir nokkra daga - og íbúarnir því flutt heim á næstu vikum og mánuðum. Í öðru lagi eru margir að flytja lögheimili sín frá Grindavík og í önnur sveitarfélög og  borga því útsvar á þeim stöðum en ekki í gamla heimabænum. Ætlar Grindavíkurbær samt sem áður að borga með börnum sem svo stendur á hjá?

Þarna er fleira undarlegt svo sem sérstök sálfræðiþjónusta við grindvísk börn og að bærinn borgi fyrir það sérstaklega. Eru þau virkilega svona illa farin eftir eldgosin á Reykjanesi að þau þurfi á sálfræðingi að halda, frekar en önnur börn?
Það eru sálfræðingar starfandi við alla skóla á höfuðborgarsvæðinu, að því að ég best veit, og því eðlilegt að þeir þjóni þessum börnum sem öðrum. Annars geta nýir nemendur, sem skipta um skóla vegna aðsetursskipta, farið fram á slíkt hið sama!

Já, það er margt skrítið hjá þessari bæjarstjórn og nokkuð sérstakt að það heyrist ekki háværari gagnrýni á hana frá íbúunum. En kannski eru fjölmiðlar samir við sig í þessu sem öðru? Gagnrýni umræða ekki leyfð nema að litlu leyti. Kraumandi óánægja undir niðri hjá Grindvíkingum en fjölmiðlarnir kóa með yfirvöldunum og segja ekki frá því.

Allavega finnst manni eðlilegt að bæjaryfirvöld hefðu kannað vilja foreldra þessara barna varðandi skólastarf næsta vetur í heimabyggð, ekki síst þeirra sem vinna ennþá í bænum og hafa hug á að flytja þangað aftur sem allra fyrst.
Það er auðvitað dýrt að halda úti fámennum skóla svo kannski er hugmyndin með þessu að spara fjármuni. Dæmið virðist þó ekki vera reiknað til enda, miðað við þær fjárhagslegu skuldbindingar sem felast í þessari undarlegu ákvörðun bæjarstjórnarinnar.
Svo er hún auðvitað dæmigerð hræsnin varðandi vinnu þeirra sem hafa starfað við kennslu og umönnum barnanna: "rík áhersla verður lögð á að tryggja rétt­indi starfs­fólks í þeirri vinnu sem er fram und­an." Hún birtist einnig í því að haldinn verður íbúafundur eftir að þessi ákvörðun er tekin, en ekki áður eins og eðlilegt hefði verið til þess að kanna vilja foreldranna og kennarana með hana.


mbl.is Ekkert skólastarf í Grindavík næsta skólaár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samkvæmt bókinni

Öll  vestræn ríki keppast við að fordæma "árás" Írans á Ísrael, og er íhaldsráðherrann af Skaganum þar enginn undantekning. Hins vegar heyrðist lítil í henni og kollegum hennar þegar Ísrael gerði árás á konsulat Írana í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, sem er enn einn stríðsglæpurinn sem Ísraelar haf framið á sinni löngu helferð gegn nágrönnum sínum - með eindregnum stuðningi USA og fleiri ríkja. Konsulat hefur auðvitað diplómatstöðu, það er friðhelgi, rétt eins og sendiráð og því var árásin á það mjög alvarlegur glæpur.

Þá hefur ekki svo ég muni, heyrst fordæmandi raddir úr ranni þessa ráðherra okkar eða annarra íhaldsráðherra hérlendra vegna þjóðarmorðsins á Gaza - heldur aðeins þetta: Það má ekki svara ítrekuðum árásum Ísraels, því það mun aðeins stig­magn­a "ástandið".
Já, hræsnin er alltaf söm við sig.


mbl.is Ísland fordæmir árásina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lettland og minnihlutahóparnir

Eins og frægt er orðið var Ísland fyrst allra ríkja að viðurkenna sjálfstæði Lettlands, nokkuð sem Jón Baldvin, sem þá var utanríkisráðherra, hefur lengi montað sig af.
Það þrátt fyrir að ekkert lá fyrir um réttindi minnihlutahópa í landinu, einkum rússneska minnihlutans. Útkoman var skelfileg. Stjórnarflokkurinn setti á lög um að aðeins þeir íbúar, sem áttu heima í landinu árið 1940 og afkomendur þeirra, væri lettneskir ríkisborgarar. Síðan þá hefur minnihlutahópar, nú um 14% kosningabærra manna (um 300.000 manns), ekki haft atkvæðisrétt í kosningum þar í landi!
Áður, eða frá 1990, voru það miklu fleiri, en meira en helmingur þeirra hefur síðan tekið próf sem þarf til að fá ríkisborgararétt. 

Sama má segja um Úkraínu. Eftir 2014 hefur austurhluti landsins, þar sem fólk af rússnesku bergi brotið hefur verið réttindalaust og barist fyrir sjálfstæði sínu, nú síðast með hjálp Rússa, en yfirvöld í Kíev hafa notið ótakmarkaðs stuðning NATÓ og ESB til árása á einmitt þetta fólk - og borið við lýðræðisást sína.

Já, lýðræðisréttindi minnihlutahópa í þessum tveimur löndum, Lettlandi og Úkraínu, hafa verið fótum troðin með blessun og áköfum hernaðarlegum stuðningi hinna "lýðræðissinnuðu" Vesturlanda. Því er ekki nema von að þessi tvö lönd treysti bönd sín og það með fullum stuðningi "villta vestursins". Eina landið sem mótmælir stuðningnum við Úkraínu er Ungverjaland, því ungverski minnihlutinn er einnig réttindalaus í því land:

"citizenship was granted to persons who had been citizens of Latvia on the day of loss of independence in 1940 as well as their descendants. As a consequence, the majority of ethnic non-Latvians did not receive Latvian citizenship since neither they nor their parents had ever been citizens of Latvia, becoming non-citizens or citizens of other former Soviet republics. By 2011, more than half of non-citizens had taken naturalization exams and received Latvian citizenship, but in 2015 there were still 290,660 non-citizens in Latvia, which represented 14.1% of the population. They have no citizenship of any country, and cannot participate in the parliamentary elections.

https://en.wikipedia.org/wiki/Latvia


mbl.is Úkraína og Lettland gera tvíhliða öryggissamning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldfjallið?

Þessi umfjöllun um gosin, "neyðar"ástandið og "eldfjallið", er komin útfyrir allan þjófabálk. Þetta eru tíð smágos á lítilli sprungu (á jafnsléttu) og ógnar engum nema Grindavíkurbæ og svo Bláa lóninu og Svartsengi, en er þegar farið að hafa áhrif á túrismann. Minnir á Eyjafjallagosið og lokun flugvalla í Evrópu. Hvernig væri nú að draga úr þessari ýktu umfjöllun um gosin svona bara til að bjarga túrismanum og allri þeirri fjárfestingu sem ráðist hefur verið í undanfarið vegna hans, hótel o.fl.?

Er athyglissýki "náttúruvár"sérfræðinganna, jarð- og eldfjallafræðinga, almannavarna, fjölmiðla og Veðurstofunnar næg ástæða til að stjórna fjölmiðlaumræðunni bæði hér og ytra, með stórtjóni fyrir þjóðarbúið?
Og hvað kosta svo öll herlegheitin í kringum varnargarðanna? Ekkert útboð heldur eflaust allt unnið á tímakaupi, vel smurt á eins og venjan er á þessu okurskeri, og allt í boði íhaldsins sem leyfir vinum sínum að komast á ríkisgarðana. Já, hvernig eru þessir verktakar valdir - og hver velur þá?


mbl.is Nálægð við flugvöllinn vekur athygli úti í heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þótt fyrr hefði verið

Helgi þessi hefur lengi verið þekktur fyrir rasískar skoðanir, einkum í garð miðausturlandabúa sem iðka íslam. Hann var kosinn formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar árið 2016 en var það nú aðeins stutt í það skiptið.
Ekki veit ég hversu lengi hann hefur kennt við Menntaskólann á Laugarvatni, en þeir þar á bæ hafa eflaust lengi vitað af þessum rasista kennandi nemendum við skólann:

https://www.hringbraut.is/frettir-pistlar/helgi-frodufellandi-af-reidi-othverri-hasshausar-og-fordomar/

Gott er þó að vita að skólayfirvöld bregðast við, þó seint sé.
Það er greinilega aukinn rasismi á ferð í íslensku samfélagi, drifinn áfram af Sjálfstæðisflokknum, aðallega formanninum og dómsmálaráðherranum, og nú nýlega tók formaður Samfylkingarinnar undir með þessu liði og kynnti þannig undir útlendingaandúðina. 

Hins vegar stendur mjög sterk grasrót gegn þessu og hefur tekist að vekja athygli á rasisma og hræsni Vesturlanda gagnvart fólki af öðrum kynþætti og annarri trúar en hvítum og kristnum.

Íslensk stjórnvöld eru að átta sig á að ekki er hægt að láta sem ekkert sé og hafa loksins drullast til þess að hjálpa fólkinu á Gaza, sem hefur rétt á dvalarleyfi hér á landi. Sigur Solarissamtakanna og No Borders er stór og því skiljanleg þessi viðbrögð rasistans í þeirra garð.
Nú er bara að fylgja þessu eftir og vinna dómsmálið vegna Eurovision og senda Palestínumanninn geðþekka í úrslitakeppnina í Malmö nú í vor. Svindl RÚV við kosningarnar til að koma í veg fyrir það, er auðvitað til háborinnar skammar.

 

 


mbl.is Kennari lætur af störfum í kjölfar rasískra ummæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að gera neyðaraðstoð tortryggilega

Mogginn gerir það ekki endasleppt. Reynir að gera sjálfboðaliðastarf til að bjarga fólki frá bráðum dauða, tortryggilegt. Fyrir það fyrsta er söfnunin ekki opinber. Hún fer ekki fram með því að ganga í hús eða á götum úti heldur fer hún fram á netinu.
Þá eru fjölmörg dæmi um þannig safnanir þar sem er verið að safna fyrir einstaklinga, sem þurfa á fjárhagsaðstoð að halda og hefur ekki verið amast við slíku hingað til.

Hér er greinileg enn ein afvegaleiðingin hjá skrílnum sem starfar á Mogganum, auðvitað fyrst og fremst til að bera blak af aumingjunum í ríkisstjórninni, Bjarna Ben og kó, sem þykist vera að hjálpa því fólki á Gaza sem á dvalarleyfi hér á landi en kemst hvorki lönd né strönd með "hjálp" þess opinbera. Sú hjálp er auðvitað einber sýndarmennska enda hefur ekkert komið út úr henni.

Nýjustu fréttir frá Gaza eru þær að um 700 manns er enn á sjúkrahúsi eftir árásir Ísraelshers á sveltandi mannfjölda á Norður-Gaza, þar af 200 manns með skotsár. Yfir 100 manns hafa verið drepnir.
Samkvæmt Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna eru morðin á hlaupársdag ekki fyrsta árásin á fólk sem reynir að nálgast hjálpargögn á Gaza. Frá miðjum janúar til loka febrúar hefur Ísraelsher að minnsta kosti gert 14 árásir á mannfjölda sem safnast hefur saman til að taka á móti neyðaraðstoð. Skotið hefur verið á fólkið með sjálfvirkum byssum og kastað að þeim handsprengjum.

Þessar aðferðir Ísraelshers við stríðsreksturinn á Gaza hafa orsakað algjört neyðarástand á svæðinu og verður að rannsaka af óháðum aðilum sem brot á alþjóðarétti segir í tilkynningu frá Mannréttindastofnuninni.
Nú þegar hafa 10 börn látist úr hungri á sjúkrahúsum á Gaza og enn gerir ísraelski flugherinn árásir á flóttamannabúðir á svæðinu. 17 manns voru þannig drepnir í nótt.

Þetta reynir Mogginn að gera lítið úr með því að gera söfnunina til að forða börnum og konum undan þessum drápum tortryggilega.
Skömm blaðsins er mikil, rétt eins og allra þeirra sem ekkert gera til að koma þessu fólki til aðstoðar - heldur þvert á móti senda vopn og skotfæri til Ísraela svo þeir geti haldið morðunum áfram: Danmörk, Holland, Þýskaland, Frakkland, Ástralía, Kanada og svo auðvitað aðalbófinn, Bandaríkin.
Þetta eru bestu "vinir" hægra liðsins hér á landi og því ekki nema von að engrar hjálpar er þaðan að vænta.


mbl.is Leyfislaus söfnun fyrir Palestínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir Hamas?

Þetta er all undarleg frétt hjá Mogganum. Gefið er í skyn að það sé ekkert að marka þessa frétt um nýjasta fjöldamorð Ísraelshers á almennum borgurum í Gaza, því fréttin komi frá "heilbrigðisráðuneytinu" sem sé undir stjórn Hamassamtakanna!
Það vill hins vegar svo til að talsmaður Ísraelsstjórnar hefur viðurkennt að hafa skotið á fólkið. Þetta hryðjuverk hersins er svo staðfest af Al Jezeera fréttastofunni, sem verður nú að teljast áreiðanlegur og hlutlaus fréttamiðill.
Þar kemur og fram að a.m.k. 100 manns, eflaust mun fleiri, er alvarlega særður og liggi nú á sjúkrahúsi.
Þá hefur framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, fordæmt fjöldamorðin og krefst tafarlauss vopnahlés.
Mogginn kýs hins vegar að horfa framhjá þessum staðreyndum og reynir að gera þessar fréttir tortryggilegar. Er það ekki í fyrsta sinn sem það gerist þar á bæ.
Þá hefur Öryggisráðið verið kallað saman nú í kvöld vegna þessa hryðjuverks Ísraelshers á óbreyttum borgarum á Gaza.


mbl.is Segja yfir 100 drepna í skotárás Ísraela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðsluáróðurinn magnast

Eftir gosið 8. febrúar sl. byrjaði strax hræðsluáróðurinn um að stutt væri í næsta gos á Reykjanesi. 23. febrúar var til dæmis sagt að það gæti gosið í næstu viku miðað við kvikusöfnun. Samt kom fram í annarri frétt um svipað leyti, í þetta sinn frá HÍ, að áætlað væri að uppsöfnuð kvika sé 5 milljónir rúmmetrar en að það þurfi 8-15 milljón rúmmetra til að gjósi á ný. Samkvæmt því gæti nýtt gos dregist til 15. mars en yfirleitt hljómar hræðsluáróðurinn upp á mánaðarmótin næstu.
Nú þegar dregur nær mánaðarmótunum er þetta ítrekað, en Veðurstofan segir hins vegar að það þurfi 8-13 milljónir rúmmetra til að gjósi á ný. Þarna lækkar magnið sem sé um tvær milljónir rúmmetra miðað við tölur frá Háskólanum (þ.e. í hærri magntölunum)! 
Svo sem ekki skrítið. Veðurstofan er miklu duglegri í að hræða fólk en Háskólinn er. Ætli henni sé borgað sérstaklega fyrir það að halda íbúunum hræddum - og burtu frá bænum?
Þá er auðvitað verið að telja fólki trú um að vísindin, og tæknin, séu það nákvæm að þau geti reiknað út hve mikið kvikumagn sé á ferð. Vona að almenningur sé ekki svo auðtrúa.


mbl.is Aukið hættustig: 7,6 milljónir rúmmetra af kviku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþingismaðurinn og mótmælendur

Birgir Þórarinsson guðfræðingur og alþingismaður, áður fyrir Miðflokkinn en nú fyrir Sjálfstæðisflokkinn, er einn þeirra sem reynir að auka á andúð fávísra öfgamanna á Palestínumönnum og stuðningsmönnum þeirra. Hann skrifaði grein í Moggann í gær, fimmtudag, þar sem koma fram lúalega árásir á mótmælendur og lygar á leiðtoga Palestínumanna, þ.e. Hamas, og er það ekki í fyrsta skipti sem hann lepur upp lygarnar frá hægri öfgamönnum í Ísrael.

Lúalegheit Birgis felast m.a. í því að bera saman fjöldamorðin á Gaza og "flóttamennina" frá Grindavík! Einnig er honum tíðrætt um að leiðtogar Hamas lifi í vel-listingum  í útlöndum en hvetji til fórna almennings á Gaza. Hann nefnir Khaled Mashal sem dæmi, kallar hann miljónamæring sem færir engar fórnir en fórnar löndum sínum í staðinn. Hvergi er vitnað í heimildir fyrir þessu, enda eflaust hrein og klár lygi eins og fleira sem kemur frá þessum fyrrum Miðflokksmanni.

Hið rétta er að Mashal var leiðtogi Hamassamtakanna, sem unnu stórsigur í almennum kosningum í Palestínu árið 2006 og var við stjórnvölin í Gaza til árins 2017. Núverandi leiðtogi Hamas býr á Gaza og deilir með því örlögum þjóðar sinnar.
Af Mashal er það að segja að Ísraelsstjórn hefur margoft reynt að myrða hann - m.a. árið 1997 - og deilir þannig einnig örlögum með löndum sínum. Hann varð leiðtogi Hamas eftir að Ísraelsmenn drápu tvo æðstu forystumenn Hamas árið 2004.
Af dvöl hans í útlöndum er það að segja að hann bjó lengi í Jórdaníu, þ.e. í gömlu Palestínu, þar til konungur Jórdana rak hann og fleiri Palestínumenn úr landi til að þóknast Kananum og af hræðslu við Ísrael. Síðan hefur hann verið landflótta eins og svo margir Palestínumenn. Vinsældir hans og Hamas meðal Gazabúa má fyrst og fremst rekja til þess hve hreyfingin hefur verið dugleg að berjast fyrir réttindum Palestínu og að standa uppí hárinu á fasistastjórninni í Jerúsalem.

https://en.wikipedia.org/wiki/Khaled_Mashal

 


mbl.is Keyrt á mótmælanda fyrir utan Ráðherrabústaðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 78
  • Frá upphafi: 455375

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband