"Þverpólitísk samstaða"??

Nú bregst Ögmundi illilega bogalistin og fer út í hið pólitíska spil sem hann hefur gagnrýnt svo harðlega undanfarið. Það er vitað mál að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn muni aldrei styðja alvarlegar refsiaðgerðir gegn Ísrael eins og slit á stjórnmálasambandi og/eða verslunarbann við landið.

Þetta var þó krafan sem var samþykkt á "meðmæla"fundi við utanríkisráðuleytið nú seinnipartinn. Þar samþykktu allir ekki aðeins fordæmingu á verknaði Ísraela heldur einnig að stjórnmálasambandi yrði slitið sem og öllum samskiptum á menningar-, verslunar- og íþróttalegu sviði.

Mér sýnist í raun vera meirihluti í utanríkismálanefnd fyrir þessu, þ.e. stuðningur Birgittu, sem lagði fram tillögu þess efnis á nefndarfundinum í kvöld, Vinstri grænna og Össurar (þótt hann hafi verið loðinn að venju á fundinum).

Ef Ögmundur ætlar að hlauspast undan merkjum þá er hætt við að stuðningsmenn hans innan flokks Vinstri grænna hætti að taka mark á honum og fari alvarlega að hugsa sér til hreyfings.


mbl.is Hrikalegir atburðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Birgitta er frábær talsmaður okkarallavega mín.

Sigurður Haraldsson, 1.6.2010 kl. 02:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 135
  • Frá upphafi: 455528

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 122
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband