3.11.2010 | 21:46
Fleinn í holdi
Mér skilst að Þór Saari hafi verið "pain in the ass" á öllum þeim vinnustöðum sem hann hefur verið á. Sögurnar úr Seðlabankanum eru einkum slæmar. Hann hafi haft þar allt á hornum sér, verið síkvartandi, einkum yfir launum og hótað margsinnis að segja upp. Eitt sinn var einum seðlabankastjóranum nóg boðið og hvatti hann eindregið til að gera það - sem hann og gerði öllum til mikils léttis.
Þór leikur greinilega sama leikinn á þingi og sem talsmaður Hreyfingarinnar, er allra manna afundnastur og leiðinlegastur - með sífellda neikvæðni á vörunum. Megi Guð almáttugur - og allir heiðnir vættir - forða okkur frá því að einhver taki mark á þessum manni.
Leiksýning Jóhönnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.12.): 0
- Sl. sólarhring: 101
- Sl. viku: 355
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 314
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvað kemur lundarfar Þórs Saari við getuleysi ríkisstjórnarinnar? Ekki er hann í forsvari fyrir stjórnina.
Svona málflutningur eins og þú heldur fram Torfi er sönnun þess að ekki er hægt að benda á neitt gott sem frá stjórnvöldum hefur komið. Ekki er heldur hægt að benda á neinar rangfærslur hjá Þór Saari í fréttinni. Því er tekið til þess ráðs að reyna að rægja þann sem þorir að segja sannleikann!! Þetta eru aðferðir gungunnar!!
Gunnar Heiðarsson, 3.11.2010 kl. 21:58
Góður Gunnar :) alveg rétt orðað hjá þér..
Marteinn Unnar Heiðarsson, 3.11.2010 kl. 22:01
Rétt hjá Gunnari, ef mönnum þóknast ekki sannleikurinn þá er persónan rökkuð niður til að reyna draga athyglina frá vandanum.
Torfa finnst kannski bara allt í lagi að samborgurum hans sé hent út á götuna dag eftir dag, hann er líklegast með vinnu og getur ekki séð að það sé eitthvað vandamál.
Skammastu þín.
Tómas Waagfjörð, 3.11.2010 kl. 22:22
Það eru lengi til einhverjir ærunagarar í þágu þeirra sem hafa völdin hverju sinni og hér skipar síðuritari sér í hóp þess undirmálshóps greinilega!
Kristján H Theódórsson, 3.11.2010 kl. 22:38
Þór Saari er einhver allra öflugasti þingmaður landsins og maður þarf ekki að vera sammála öllum hans skoðunum til að viðurkenna það. Það að einhver tréhestur í Seðlabankanum ber honum illa söguna, hljómar bara sem hrós í mínum eyrum. Ef menn hafa engin málefnaleg rök gegn málflutningi Þórs, en leggjast þess í stað svo lágt að bera út Gróusögur um hann, eru þeir að dæma sjálfa sig til fyrirlitningar.
Leiksýningin sem Þór talar um að Icesave-stjórnin hafi komið á fjalirnar, er öllum landsmönnum ljós. Það er þess vegna sem fylgi hennar er komið niður fyrir 30%. Það eina sem þessari aumu ríkisstjórn er lagið, er að stunda blekkingar og auka ófriðinn í landinu. Enn eina ferðina koma þeir með yfirlýsingar um að þeir ætli að skrifa uppá Icesave-kröfurnar, í nafni landsmanna. Þó er deginum ljósara að Íslendingar ætla ekki að beygja hnén fyrir nýlenduveldunum.
Burt með þetta brotna og skítuga leirtau, sem sjálft nefnir sig Norræna velferðarstjórn !
Loftur Altice Þorsteinsson, 3.11.2010 kl. 22:47
Ég sé að það er miklar hetjur hér á ferð! Málið er auðvitað það að allt sem Þór segir er gamlar tuggur, sem hefur margoft verið svarað (nú síðast í viðtalið við Jóhönnu hér á mbl.is sem birtist fyrir nokkrum klukkustundum).
Svo er það ekki mitt að hrekja fullyrðingar Þórs lið fyrir lið. Ég er ekki í fullu vinnu við nöldrið eins og hann er. Ég var einfaldlega að benda á að maðurinn er meistari neikvæðninnar - og geti aldrei þrifist nema í því að finna að einhverju.
Svo er auðvitað athyglisvert að fasistar eins og Loftur Altice séu komnir í hóp þeirra sem verja Hreyfinguna. Eigum við von á alræði fasimans í stað velferðarstjórnarinnar? Er þá ekki rétt að fara að kalla tunnubyltinguna sínu réttu nafni?
Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 4.11.2010 kl. 06:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.