Er það ekki aðeins of seint um rassinn gripið?

Fyrri frétt um málið sýnir að þetta útspil nú er algjör kúventing frá fyrri yfirlýsingu. Því verður að segja eins og er að menn efast um að hugur fylgi hér máli.

Annars er þetta mál dæmigert fyrir klúðrið sem varð við stjórnarmyndunarviðræður í kjölfar síðustu sveitarstjórnarkosninga. Þar setti einn listi - Kópavogslistinn - sig á móti því að Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar, yrði bæjarstjóri. Úr varð sú Salómonslausn að Guðrún þessi Pálsdóttir yrði bæjarstjóri þrátt fyrir þá staðreynd að hún hafi starfað fyrir fyrrum stjórnarherra Gunnar Birgisson og co, m.a. sem fjármálastjóri bæjarins og hlaut því að bera ábyrgð á þeirri óráðsíu og spillingu sem þá ríkti í bæjarmálefnum Kópavops.

Hún hefur greinilega lítið lært af kosningarúrslitunum síðast sem hafnaði þessum spillingaröflum algjörlega - og haldið ótrauð áfram á sömu braut.

Afsökunarbeiðnin kemur því of seint. Það er kominn tími til að hreinsa það fólk alveg út  úr stjórnkerfi bæjarins sem sat þar í tíð Gunnars Birgissonar - og segja bæjarstjóranum upp störfum. Ef það er eitthvað vandamál fyrir Kópavogslistann, þá er honum velkomið að ganga í eina sæng með Íhaldinum og Framsókn - og mynda nýja bæjarstjórn.

Þeim svikum munu Kópavogsbúar hins vegar ekki gleyma í næstu kosningum.


mbl.is Mun ein nota bílinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

hér lagst ekki neitt svo mikið er víst

Jón Snæbjörnsson, 10.2.2011 kl. 16:07

2 identicon

notaði hún aðra bíla bæjarins þegar dóttirin var á bílnum sem bærinn lét henni í té ? Hefur hún ekki
nægilega há laun til að reka eigin bíl sem þá dóttirinn gæti notað

Það er rétt - það lagast ekki neitt - Það er eins og fólk missi dómgreindina við að fá völd

Lara (IP-tala skráð) 10.2.2011 kl. 16:58

3 identicon

Er hún starfi sínu vaxin ef hún skilur ekki sinn eign ráðningarsamning??

Guðrún Valdimarsdóttir (IP-tala skráð) 10.2.2011 kl. 17:48

4 identicon

Eru þetta ekki góðar fréttir?

Borgarstjórinn biðst "AFSÖKUNAR"  og hugsanlega taka þá aðrir sem úthluta og nýta "embættisbíla" við sér.

Það er heldur ekki gjörsamlega útilokað að  eftir þennan farsa verði  reglur um svona hlunnindi endurskoðaðar eða í öllu falli skýrðar.

Agla (IP-tala skráð) 10.2.2011 kl. 18:26

5 identicon

Þeir ættu að taka við sér - en einhvern vegin virðist þetta bara verða umræða í smá tíma og svo gleyma allir og ekkert breytist.

Hvernig var með eftirlaunafrumvarpið sem Steingrímur fór oforsi yfir þegar hann var í stjórnarandstöðu - hefur hann gert eitthvað til að laga það?

Lara (IP-tala skráð) 10.2.2011 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 455384

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband