Kominn tími til að leyfa Arnóri að spreyta sig á miðjunni

Það er sannarlega kominn tími til að leyfa Arnóri Atlasyni að spreyta sig sem leikstjórnanda hjá landsliðinu í stað Snorra Steins Guðjónssonar, enda er hann aðalleikstjórnandi AGK í dönsku deildinni meðan Snorri Steinn er þar aðeins varamaður. Þetta sáu íslenskir sjónvarpsáhorfendur greinilega í síðasta leik liðsins þar sem Arnór spilaði á miðjunni og skoraði þaðan öll mörk sín sem sýnd voru í sjónvarpinu.

Í íslenska landsliðinu er þessu öfugt farið. Þar spilar Snorri Steinn nær alla leiki (allan leikinn) á miðjunni á meðan Arnór er nær eingöngu notaður í skyttuhlutverkinu vinstra megin á móti Aroni Pálmarsyni - og þarf oftar en ekki að sitja á bekknum.

Þetta val Guðmundar landsliðsþjálfara er einkar óheppilegt fyrir íslenska landsliðið því það bitnar ekki aðeins á sóknarleiknum (Snorri skorar varla með uppstökki fyrir utan eins og flestir vita) heldur einnig á varnarleiknum. Meðan Arnór er einn okkar besti varnarmaður þá er Snorri einn okkar sísti - og iðulega skipt út af eftir sóknir liðsins.  Sama á við um Róbert Gunnarsson. Því þarf íslenska landsliðið að skipta tveimur mönnum út í vörn og sókn - og það notfærðu andstæðingar okkar sér mjög í lokaleikjum HM nú í janúar.

Íslenska landsliðið er í mikilli hættu á að komast ekki áfram í undankeppni EM. Því er þörf á róttækri breytingu á skipulagningu liðsins í leikjunum sem eru framundan (gegn Þjóðverjum og Austurríkismönnum). Sjálfsögðust og eðlilegasta breytingin er að setja Snorra á bekkinn og nota Arnór sem leikstjórnanda.


mbl.is Arnór með 9 mörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 455555

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband