Nægar sannanir fyrir hendi til að hefja mál gegn USA

Áður hefur verið bent á að aðeins sé hægt að hefja mál gegn Bandaríkjamönnum fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag vegna árásinnar þann 1. maí, að fyrir liggi ótvíræðar sannanir á því að drápin hafi ekki verið framin í sjálfsvörn.

Það að nær allir hinna myrtu hafi verið óvopnaðir sýnir svart á hvítu að fyrir hafa legið skipanir um að drepa mennina (nema þá að þessi þrautþjálfaða sérsveit bandaríska hersins hafi verið slegin skelfingu og misst stjórn á sér, sem er vægast sagt ólíklegt). Það að gefa beina skipun um morð, hvort sem mótspyrna sé veitt eða ekki, er bannað jafnvel í stríði.

Hins vegar er samt óvíst að Bandaríkjamenn verði dregnir fyrir rétt, því stríðsglæpadómsstólinn er greinilega hlutdrægur, pro-vestrænn, eins og margoft hefur komið fram undanfarin ár.

Þá er einnig spurning hvernig Pakistanar bregðast við broti Bandaríkjamanna á fullveldi landsins.
Aðalritari utanríkismála í Pakistan hélt blaðamannafund nú í dag þar sem hann gagnrýndi harðlega þetta brot á fullveldi landsins.
Tónninn er mjög harður: "sérhvert land sem telur sig hafa einhliða rétt og styrk til slíks athæfis mun komast að því að það hafi gert sig sekt um stór mistök."
Hann segir ennfremur að hefðu Pakistanar fengið veður af þessari aðgerð hefði það haft hræðilegar afleiðingar.
Verða þessi ummæli ekki túlkuð öðruvísi en svo, að bandarísku herþyrlurnar hefðu verið skotnar niður ef þeirra hefði orðið vart.

Þá neitar þessi talsmaður pakistönsku stjórnarinnar að herflugvélar Pakistans hafi leyft Bandaríkjamönnum að hverfa óáreittir af vettvangi. Þeir höfðu þegar verið horfnir á braut þegar þær komu á staðinn.

Þannig virðast Bandaríkjamenn vera að missa eina styrkustu stuðningsþjóð sína í baráttunni gegn "hryðjuverkum".


mbl.is Aðeins einn var vopnaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Torfi,

Leiðtogi hryðjuverkasamtaka var tekinn út, punktur og basta.  Ég skil ekki hvað er svona merkilegt við þetta dæmi.  Heimurinn stendur á öndinni vegna þess að hryðjuverkamaður sem ber ábyrgð á dauða tugþúsunda múslíma og annarra út um allan heim var drepinn.  Farið hefur fé betra segi ég nú bara.  Þvílíkt rugl. 

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 5.5.2011 kl. 15:16

2 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Mig minnir nú að ég hafi margoft útskýrt gagnrýni mína á þessa aftöku - og gagnrýni fjölda annarra. Lestu það fyrst og kommenteraðu, svo skal ég svara þér.

Torfi Kristján Stefánsson, 5.5.2011 kl. 15:39

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þó svo að ýmislegt megi um þessi mál segja þar sem ofbeldi kemur mjög við sögu, þá er spurning eftir hvaða forsendum við eigum að taka afstöðu. Þessi mál eru ekki auðvelt og sem friðarsinni tel eg mig ekki hafa neitt vit á þessu. En Bandaríkjamenn hafa ástæður til þessa þó umdeilanlegt hvort rétt hafi að drepa þennan forsprakka stórfelldra hefndarverka. Þeir sem koma nálægt ofbeldi og hermdarverkum eru meira og minna skemmdir til sálar og líkama og gera sér líklega ekki alltaf ljós munurinn á réttu og röngu. Sá sem tekur sér vald að skaða og jafnvel deyða annan verður alltaf álitinn ofbeldismaður.

Þetta hlutverk Bandaríkjamanna að vera n.k. alþjóðlegt lögregluvald verður alltaf á vettvangi umræða og verður mikill efniviður á sviði heimspeki, siðfræði og trúarbragðasögu. Því miður hafa mörg af verstu myrkraverkum sögunnar verið framin undir yfirskini trúariðkunar.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 6.5.2011 kl. 13:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband