Ólína með kjaft að venju!

Er ekki að verða kominn tími á Ólínu að fara að stilla illskuköstin í sér?
Það er ekki langt síðan hún hafði allt á hornum sér vegna leitarinnar að sænska ferðamanninum - vonandi hafa aðstandendur hans ekki heyrt í kerlu - og núna þessi harkalega árás á Jón Bjarnason.

Hingað til hefur þó Ólína mátt eiga það að hún hefur verið frekar varkár í yfirlýsingum sínum um fiskveiðifrumvarparhugmyndir Jóns, enda vissara fyrir hana þar sem þær eru vinsælar fyrir vestan, en nú gengur hún í vandlætingarkórinn og æpir á ráðherra eins og Samfylkingarliðið allt.

Samt heyrist engin málefnaleg gagnrýni, aðeins að Jón hafi leynt hugmyndunum - og svo þegar hann birtir þær á heimasíðu ráðuneytisins er það ósvífni af honum!
Það er greinlega vandlifað í þessu samstarfi við kratana.


mbl.is Hlýtur að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Lilja Mós segir að Samfylking og Vg hafi aldrei ætlað að breyta neinu í sjávarútvegi. Þetta upphlaup gegn Jóni eru gárur í vansglasi til að leyna því.

Sigurður Þórðarson, 27.11.2011 kl. 22:42

2 Smámynd: Jón Sveinsson

Nei hún ólína á ekki að stilla skap sitt hún á að beita því meira svo fólk sjái hve rugluð hún er og filgi sf snarminkar þetta er leikrit læðunar og fressins sem stjórna þessu. 

Jón Sveinsson, 27.11.2011 kl. 23:02

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Mér er flökurt af þessum asnagangi á alþingi!

Sigurður Haraldsson, 28.11.2011 kl. 00:46

4 Smámynd: Jón

Mér er bara almennt flökurt þegar ég heyri nokkuð koma frá Ólínu.

Jón, 28.11.2011 kl. 01:16

5 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Jón og Golíat

Jón Bjarnason er að berjast við sjálft ESB sem vill með öllum tiltækum ráðum koma honum út úr landbúnaðar og sjávarútvegsráðuneytinu, Þjónar ESB hér á Íslandi Samfylkingin vaka eins og hrægammur yfir öllum athöfnum Jóns Bjarnasonar, með þeim eina tilgangi að koma honum frá störfum. Þeir vita sem er að Jón Bjarnason leyfir enga ESB aðlögun í sínu ráðuneyti. Jón Bjarnason er ekki landráðamaður, hann og Ögmundur Jónasson gegna sínum embættum með það að leiðarljósi að fara eftir landslögum.

Sjálfur forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir talaði málum ESB í Kastljósviðtali þann 29 október sl. þar var hún spurð um skuldakreppu ESB og það stóð ekki á viðbrögðum hennar þegar hún steytti hnefanum og talaði um að "Við" munum koma okkur útúr þessu, Hún virkilega sagði VIÐ (í ESB) þarf frekari vitnana við? ( undarlegt má teljast að ekki sé hægt að nálgast þetta fræga Kastljósviðtal á vef RÚV)

Guðrún Sæmundsdóttir, 28.11.2011 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 55
  • Sl. sólarhring: 86
  • Sl. viku: 124
  • Frá upphafi: 455494

Annað

  • Innlit í dag: 54
  • Innlit sl. viku: 113
  • Gestir í dag: 53
  • IP-tölur í dag: 53

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband