20.1.2012 | 19:16
Já, Slóvenarnir voru góðir við okkur!
Þetta er alveg rétt (sama í sjónvarpinu). Slóvenar voru greinilega að passa sig á því að vinna okkur ekki of stórt, köstuðu boltanum beint út af í tveimur síðustu sóknunum (og reyndu ekki að koma í veg fyrir að við skoruðum og minnkuðum muninn í tvö mörk)!
Nú er bara að biðja og vona að Norðmenn ná ekki í stig gegn Króötum (og kæri svo ekki okkar leik í kjölfarið!)!
Annars fékk ég ekki betur séð en Guðmundur Guðmundsson hafi verið að koma sér út úr landsliðsþjálfarastarfinu. Kurteislegum spurningum Einars Jónssonar á RÚV var svarað með "því getur þú svarað eins vel og ég ... [stop]. og "þú sást það eins vel og ég ... [stop]"! Guðmundi tókst reyndar að hemja sig en honum tókst þó ekki að leyna hvað hann var fúll!
Og það var ekkert honum að kenna heldur aðeins leikmönnunum. Varnarleikurinn var hörmulegur, markvarslan engin (og svo benti Einar á að tæknifeilarnir í sókninni hafi verið fjölmargir ...).
Einar hefði átt að bæta við að stjórnun Guðmundar á leiknum hafi verið hörmuleg eða réttara sagt engin. Spilað með sömu mönnun allan leikinn, bæði í sókn og vörn, þrátt fyrir að full ástæða hefði verið að hvíla menn eins og Aron Pálmarson og Alexander (sem voru langt frá sínu besta).
Þetta er einmitt vandamálið hjá Guðmundi og hefur alltaf verið. Hann treystir ekki nema örfáum leikmönnum. Svo talar hann um "þunnan hóp"! Af hverju velur hann ekki bara 10 manna hóp fyrst hann notar ekki fleiri? Það er jú miklu ódýrara fyrir Sambandið!
Annars eru Slóvenarnir góðir, með miklu betra og efnilegra lið en Íslendingar. Þetta eru flestallt ungir strákar - sem þjálfarinn treystir og þorir að nota. Já, flott lið!
Að lokum: Rosalega er Guðmundur að verða þreyttur!!!! Ætli hann sitji ekki uppi atvinnulaus innan skamms, því ekki gengur honum betur með Rein Neckar Löwen?
Og svo eigum við auðvitað fjöldann allan af frábærum þjálfurum sem bíða á hliðarlínunni ...
Íslandi gefin mörk í lokin? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 99
- Frá upphafi: 458378
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 85
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Norðmenn eru auðvitað komnir strax með þetta! Blessuð fórnarlömbin!
"Avtalt spill":
http://sport.aftenposten.no/sport/handball/article220715.ece
Torfi Kristján Stefánsson, 20.1.2012 kl. 19:22
Eins og fólk man eflaust þá varð stór skandall á norsku sjónvarpsstöðinni TV2 eftir leik Íslendinga og Noregs (sem Ísland vann). Þá var ráðist að dönsku dómurunum fyrir að vera skræfur og fjandanum sagt að taka þá!
Þulurinn bað svo heittrúaða Norðmenn fyrir að hafa blótað í beinni útsendingu!
Þó virðist sem sjónvarpsstöðin hafi ekkert lært af fyrra klúðri sínu! Nú var þetta hrópað eftir lokasenuna í leik Íslands og Slóveníu:
"Det er en skandale, flaut, avtalt spill og det er griseri. Ingen tvil om at det er avtalt spill".
Ég nenni ekki að þýða þetta þar sem þetta er jú gammel-dansk sem allir Íslendingar hafa lært í skóla.
Svo eru Íslendingar umvörpum að flytja til Noregs. Verði þeim að góðu!
Torfi Kristján Stefánsson, 20.1.2012 kl. 19:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.