Er ekki kominn tími á nýjan umhverfisflokk?

Við sjáum sífellt meiri undanlátssemi hjá þingmönnum Vinstri grænna í stjórnarsamstarfinu við nýfrjálshyggjumennina í Samfylkingunni.

Skíturinn sem Vg er lentur í með sambúðinni við kratana er farin að líkjast skítnum sem beljurnar á Brúarreykjum þurfa að standa í með alþýðuflokksmanninn Bjarna Bærings í brúnni.

Hvert einasta frumvarp sem ráðherrar Vinstri grænna leggja fram er tekið í gíslingu einhvers þingmanns Samfylkingarinnar.

Kvótafrumvarpið er stopp í þingflokki SF, Kristján Möller heldur uppi hatrömmu málþófi  við frumvarp Svandísar Svavarsdóttir um rammaáætlunina og meira að segja frumvarp hennar um ný byggingarlög er tekið í gíslingu af sama þingmanni.

Þó svo að löngu sé komið í ljós að VG nær engum af sínum málum fram í stjórnarsamstarfinu þá er enn þjónkað við gömlu kratana í Samfylkingunni í þeirra hraðferð til hægri - með þeim árangri að fylgið hrynur af Vg.

Er ekki að verða kominn tími til að restin af Vg sameinist einfaldlega Samfylkingunni - og þeir sem ekki vilja fylgja með í þeirri vegferð stofni nýja umhverfis- og vinstriflokk?

Nóg er amk til af góðu fólki sem ætti að geta verið á lista hjá slíkum flokki.

 


mbl.is VG og olíuvinnsla á Dreka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 132
  • Frá upphafi: 455509

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 119
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband