10.11.2015 | 11:06
"útbúin til nauðgana"?
Þetta er nú heldur klén vörn hjá aðalritstjóra Fréttablaðsins því þó svo að í frétt blaðsins sé orðið "sér"útbúin ekki notað stendur skýrum stöfum í fyrirsögninni að hún hafi verið "útbúin til nauðgana". Ef það er ekki "sér"útbúnaður, hvað er það þá?
Það er spurning hvert Fréttablaðið er að fara með þessari umfjöllun sinni um meintar nauðganir en þær hafa verið umfjöllunarefni á forsíðum blaðsins undanfarna daga. Er ætlunin að efla til múgsefjunar, jafnvel ofbeldis og skrílsláta í netheimum, á götum úti og á meðal fólks?
Vald fjölmiðla er mikið - og vandmeðfarið. Það er ábyrgðarhlutur að taka lögin í eigin hendur og gera sjálfan sig að dómstól - götuna þar með einnig - og oftar en ekki með fréttaflutningi sem byggir á getgátum eða jafnvel beinum tilbúningi.
Þá er og ábyrgðarhluti að halda fram fölskum sakargiftum í málum sem þessum, þar sem sönnunarbyrðin er erfið.
Mér sýnist það vera meira vandamál nú um stundir en sjálf hin meintu brot. Taka verður á því af miklu meiri hörku en gert er ef um rangar sakagiftir er að ræða - og fjölmiðlar verða að fara sérstaklega varlega í að bera slíkt út, eða ýta undir slíkt.
Ég vil leyfa mér að fullyrða að Fréttablaðið hefur ekki farið varlega í þessum efnum undanfarið. Kannski er það hin nýja stefna sem aðalritstjórinn boðaði þegar hún settist í stólinn?
Stendur við umfjöllunina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 245
- Frá upphafi: 459313
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 215
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.