Víðar kalt og einnig í fyrrinótt

Það var einnig kalt í nótt í nágrenni Reykjavíkur. Á Sandskeiði var t.d. frost í fjóra tíma. Hitinn fór undir tvö stig á fjölda stöðva á Suður- og Vesturlandi.
Í fyrrinótt var sami kuldinn þó svo að Einar Sveinbjörns minnist ekki á það. Þá var einnig frost á Þingvöllum og sömuleiðis í Þykkvabæ. Skrítið að ekkert heyrist í fjölmiðlum frá fólki á þessum stöðum, t.d. kartöflubændum í Þykkvabænum. Líklega fyrst og fremst vegna áhugaleysis fjölmiðla á lífinu úti á landi.
Trausti Jóns skrifar á moggablogginu um þennan kulda. Þar kemur einnig fram að júlí í ár er með þeim köldustu í höfuðborginni á þessari öld - og stefnir samkvæmt spám í að verða sá kaldasti.
Það er þó gott að fjölmiðlar séu loksins að vakna og hætta að apa upp eftir veðurfræðingunum að hitinn verði alla daga 8-16 stig, þegar nær væri að segja 0-16 stig!

mbl.is Mesta júlífrost á Þingvöllum í áratug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 455395

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband