25.3.2021 | 18:03
Getur ekki verið verra!
Ekki byrjar nú þjálfaraferill Davíðs vel. Þrjú núll í hálfleik gegn Rússum og sífellt meiri pressa Rússanna sem leið á hálfleikinn.
Þetta getur endað með ósköpum nema þjálfarinn skiptir inn nýjum mönnum í hálfleik. Mikael Anderson er jú á bekknum, sjálfur a-landsliðsmaðurinn, og svo er vörnin auðvitað alveg úti að aka.
Miðjan er einnig galopin og þarf að styrkja hana. Fróðlegt að sjá hvort þjálfarinn falli algjörlega á fyrsta prófinu eða hvort honum takist að klóra eitthvað í bakkann í seinni hálfleik.
Þessi frammistaða hlýtur einnig að leiða hugann að leiknum á eftir gegn Þjóðverjunum, með nýju þjálfurunum þar. Verður ekki einfaldlega sama uppi á teningnum þar, óhæfir þjálfarar sem velja liðið út frá klíkuskap - og verður refsað grimmilega fyrir?
Rússar of stór biti fyrir Íslendinga að kyngja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 18:11 | Facebook
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.5.): 5
- Sl. sólarhring: 33
- Sl. viku: 133
- Frá upphafi: 455506
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 120
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.