Sannleikurinn fyrsta fórnarlambið

Í stríði, eða eigum við að segja í aðdraganda þess, er sannleikurinn fyrsta fórnarlambið.
Við höfum orðið vitni að því í pressunni, bæði hér heima og annars staðar á Vesturlöndum, að hlutunum er snúið á hvolf án þess að fjölmiðlafólkið depli auga.

Innrás Úkraínuhers í austurhluta landsins, héraða aðskilnaðarsinna, hefur lengi staðið til með áköfum stuðningi hins "frjálsa" heims, ekki síst hinna stríðs- og morðóðu Bandaríkjamanna sem hafa fleiri árásarstríð á samviskunni en allar aðrar þjóðir í heiminum (og drepa hverjir aðra í meira mæli en þekkist meðal annarra þjóða).

Rússar hafa hins vegar beitt fælingarstefnu í Úkraínudeilunni, stillt upp herliði við landamæri sjálfstjórnarhéraðanna og á Krímskaga með þessum skilaboðum: Ef þið gerið innrás þá verjum við aðskilnaðarsinnana.

Í vestrænu pressunni er þetta látið heita "yfirvofandi innrás Rússa inn í Úkraínu"!

Blóðhundurinn Biden hefur sýnt sig vera þúsundsinnum meiri stríðsæsingamaður en Trump forveri hans, en sá lét þó harla digurbarkalega á stundum. Og kratar allra landa taka glaðir undir og vilja enn halda í austurveg til að berja á rússneska birninum.

Danir, og kratastjórnin þar, eru t.d. meira en lítið stríðsóðir þessa dagana og senda herlið til fyrrum lýðvelda Sovétríkjanna. Það minnir talsvert á seinni heimsstyrjöldina þegar 65.000 Danir börðust með nasistum á austurvígstöðvunum (og svipaður fjöldi Norðmanna).

Hinar lýðræðiselskandi þjóðir eru svo ekki meiri lýðræðiselskendur en það að þeir hunsa vilja íbúanna í austurhluta Úkraínu til sjálfstæðis, sem og íbúa á Krímskaganum.

Þær fóru hins vegar öðruvísi að þegar gömlu Júgóslafíu var skipt upp. Þar voru þær með stífa undirróðursstarfsemi, vopna- og peningasendingar til aðskilnaðarsinna svo úr urðu lönd eins og Kósóvó, Svartfjallaland og Norður-Makedónía sem aldrei höfðu verið sjálfstæð áður. Allt til að klekkja á Serbum (og Rússum auðvitað óbeint) sem Evrópusambandsríkjunum í vestri fannst vera of sterkir fyrir þeirra smekk.

Þá spiluðu fjölmiðlar (og kratar) með og enn gerist það sama. Það er nefnilega svo gaman að skrifa um stríð - bara að maður lendi ekki í því sjálfur. Og kratar hafa jú alltaf hatað Rússa, þeir síðarnefndu voru jú eitt sinn kommúnistar. Þar liggur hatrið.

 


mbl.is Aðskilnaðarsinnar senda út herkvaðningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 136
  • Frá upphafi: 455513

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 123
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband