Hverjir eru glæpamenn og illmenni?

Mjög alvarlegar ásakanir hafa birst í fjölmiðlum um stríðsglæpi Rússa í Úkraínustríðinu með myndbirtingum af almennum borgurum sem liggja á götum úti skotnir til bana.
Rússar neita þessu reyndar og segja Úkraínuher hafa sviðsett þessi morð og framið þau sjálfir.
Vitað er að ný-nasistarnir í her Úkraínu er trúandi til þess enda drápu þeir á sínum tíma (2014) sína eigin landsmenn, sem þó voru að mótmæla þá ríkjandi stjórnvöldum, aðeins til að geta klínt morðunum á herinn sem þá var hliðhollur þáverandi forseta sem vildi halla sér í austur en ekki í vestur.

Fyrir nokkru birtist myndband í sumum vestrænum fjölmiðlum þar sem úkraínskir hermenn sjást skjóta rússneska stríðfanga í hnéð - sem er auðvitað stríðsglæpur og fordæmanleg meðferð á stríðsföngum.

Nú er annað myndband í dreifingu í netheimum sem sýnir enn verri stríðsglæpi Úkraínuhers, þar sem þeir hreinlega drepa rússneska stríðsfanga.

https://www.dr.dk/nyheder/udland/voldsom-video-viser-mulige-ukrainske-krigsforbrydelser

Allt bendir til þess að hér séu hægri-öfgamennirnir enn á ferð sem svífast einskis í morðæði sínu. 

Enn eitt dæmi þessa viðbjóðs er Azov-nasistarnir í Mariupol sem halda rússneskum meirihluta borgarinnar í gíslingu og kenna svo Rússum um gífurleg dráp á eigin landsmönnum!

En Vesturlönd trúa þessu eins og nýju neti og loka enn augunum fyrir hröðum uppgangi nýnasista og annarra hægriöfgahópa í Austur-Evrópu - og eru meira að segja fúsir til að styðja við bakið á þeim með gífurlegum vopnasendingum til að klekkja á Rússum.

Og svo eru Rússarnir einfaldlega sagðir ljúga þegar þeir segjast vera að reyna uppræta þennan nýnasisma, sem bitnar mest á rússneska minnihlutanum í landinu.

Já Rússahatrið er orðið sjúklegt enda kannski ekkert skrýtið af gegnheilum kapitalistum, sem endur fyrir löngu var lýst á þennan hátt af íslenskum sósíalista:

"Það verkaði ofboð notalega á hugann, þetta heilbrigða miskunnarleysi í lýsingum á hornsteinum og helgidómum stéttaþjóðfélagsins, fangelsunum, ofan á allt vælið í íslenskum bókmenntum um það til dæmis, að allir menn væru í rauninni góðir og að „guð væri í syndinni“ o.s.frv. Auðvitað var um þá bók, sem allt annað gott, að lesa þurfti með skyni stéttvíss manns á ofboðslegum viðbjóðleik þess þjóðskipulags og þeirrar menningar, sem þar birtist ... eina rétta svarið var vitanlega að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði, og hugsa réttlæti stéttaþjóðfélagsins þegjandi þörfina."

 


mbl.is Lognið á undan storminum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Torfi Kristján Stefánsson

Höfundur

Torfi Kristján Stefánsson
Torfi Kristján Stefánsson
Höfundur er áhugamaður um hina ólíkustu hluti

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 134
  • Frá upphafi: 455507

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 121
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband