17.12.2022 | 14:33
Hvað með flugið í gærkvöldi?
Ég veit allavega um eina vél sem átti að fara í loftið kl. 21 í gærkvöldi. Fluginu var frestað vegna veðurs eftir að farþegarnir höfðu setið inni í vélinni í um tvo tíma (samt var veðrið varla skollið á!).
Það tók svo um fjóra tíma að koma fólkinu með mörgum ferðum á litlum "kálfi" á hótel stutt frá flugvellinum. Rúmlega 4 í nótt komst það svo loks á hótelið. Allir voru að sálast úr þreytu og hungri (fengu sem sé ekkert að borða allan þennan tíma).
Þetta kallar maður nú lélega þjónustu, þó ég viti svo sem ekki hverjum það er að kenna. Enn aumara er að reyna að fela það eins og Isavia virðist vera að gera hér. Líklega eiga þeir sök á þessu öllu saman, sem væri nú ekkert nýtt á þeim bænum.
![]() |
Veðurtepptar áhafnir valdið seinkunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.3.): 123
- Sl. sólarhring: 169
- Sl. viku: 346
- Frá upphafi: 461617
Annað
- Innlit í dag: 107
- Innlit sl. viku: 287
- Gestir í dag: 104
- IP-tölur í dag: 104
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.