20.3.2023 | 11:15
"Frelsun" Íraks á fölskum forsendum
Loksins druslaðist Mogginn til að birta frétt um 20 ára "afmæli" innrásar Bandaríkjamanna og Breta inn í Írak - en þá auðvitað á hlutdrægan hátt. Ekkert er til dæmis sagt frá því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks lýstu stuðningi sínum við innrásina, þó svo að hún hafi verið gróft brot á alþjóðalögum (nú er aðalástæðan fyrir stuðningnum við Úkraínumenn að hernaðaraðstoð Rússa við sjálfstjórnarhéruðin í austur-Úkraínu sé brot á alþjóðalögum og því styðji Ísland hernaðaraðstoð Vesturlanda við Úkraínu (sömu flokkar í stjórn nú, auk Vinstri grænna, sem þó gagnrýndu innrásina í Írak harðlega á sínum tíma)).
Sama áróðurinn og þá er nú rekinn í vestrænum fjölmiðlum og af stjórnvöldum á Vesturlöndum með því að persónugera hernaðarstuðninginn. Þá var það Saddam Hussain sem var vondi kallinn (síðan var það Gaddafi) og nú er það Putín sem er Grýlan. Og auðvitað eru það vestrænir leiðtogar og vestrænt "lýðræði" sem eru góðu aðilarnir, eins og svo oft áður.
Hörðustu stuðningsríki Úkraínumanna nú eru þau ríki sem hvað ákafast studdu innrásina í Írak: Bandaríkjamenn, Bretar, Ástralir, Pólverjar, Tékkar/Slóvakar, Danir osfrv.
Og innrás þessara "lýðræðisríkja" var gerð þrátt fyrir mjög fjölmenn mótmæli gegn henni um allan heim ("lýð"ræðið í hnotskurn?).
Talið er að mörg hundruð þúsund almennir borgarar hafi fallið í þessari innrás, sem enn krefst fjölda mannslífa á hverju ári. Já "frelsunin" var og er dýru verði keypt, jafn þar sem og í Lýbíu (og í Afganistan en síðastnefnda landið er reyndar ekki lengur "frjálst"!).
Til samanburðar má nefna að stríðið í Úkraínu hefur ekki kostað nema í mesta lagi nokkur þúsund almennra borgara lífið. Það sýnir að vondu Rússunum er ekki eins sinnulausir um líf almennings og góðu, lýðræðissinnuðu NATÓ-þjóðirnar eru.
Hér má sjá mun hlutlausari og sannari umfjöllum um hörmungarnar í Írak vegna innrásarinnar þar fyrir 20 árum (enda er sú sem skrifar ekki nýlendusinni né með islamfóbíu):
https://www.ruv.is/frettir/erlent/2023-03-20-frelsun-iraks-a-folskum-forsendum
Tuttugu ár frá umdeildri innrás í Írak | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 159
- Frá upphafi: 458377
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 139
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.