13.1.2024 | 17:47
Djöfuls fasismi!
Almannavarnir, með Víði Reynisson og yfirmenn almanna- og lögreglumála, gera það ekki endasleppt. Banna íbúum að búa á eigin heimilum! Og ástæðan? Mjög sorglegt vinnuslys í bænum, sem kemur í raun á engan hátt íbúðarmálum í Grindavík við.
Vald almannavarna og lögregluyfirvalda er orðið þannig að bera má það saman við verstu lögregluríki. Geðþóttaákvarðanir teknar án tillits til almennings, í þessu tilviku íbúa Grindavíkur. Af hverju er íbúunum ekki treyst til að meta sjálft hættuna og taka ákvörðun út frá því hvort það búi í bænum eða ekki? Er virkilega litið á fólk sem fífl af þessu liði?
Og hvað kostar þetta samfélagið? Með þessu er verið að gera Grindavík óbúanlega og íbúðarhús - og öll önnur mannvirki - verðlaus, sem mun kalla á gríðarlega skaðabætur úr ríkissjóði til íbúanna. Enda hætti stofnunin með langa nafnið, Nátturuhamfaratrygging Íslands, skyndilega við að meta tjón á þeim mannvirkjum sem höfðu orðið fyrir tjóni, líklega vegna skipunar frá háyfirvaldinu: Öll hús í Grindavík eru undir í sjóðnum, skemmd sem óskemmd!
Er ekki kominn tími til að ríkisstjórnin taki í taumana og fjarlægi þetta lið sem stjórnar þessu öfgum, Víði og almannavvarnarliðinu eins og það leggur sig?
Fyrirskipa brottflutning úr Grindavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Torfi Kristján Stefánsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.11.): 60
- Sl. sólarhring: 62
- Sl. viku: 86
- Frá upphafi: 458106
Annað
- Innlit í dag: 50
- Innlit sl. viku: 75
- Gestir í dag: 49
- IP-tölur í dag: 49
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.